Langanes GK 525

1202. Langanes GK 525 ex Grundfirðingur SH 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Netabáturinn Langanes GK 552 sem Grímsnes ehf. gerir bátinn út kom að landi í Njarðvík í dag og þá voru þessar myndir teknar. Báturinn hét upphaflega Þorlákur ÁR 5 og  var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ 1972 fyrir Meitilinn h/f í Þorlákshöfn. Smíðanúmer 18 … Halda áfram að lesa Langanes GK 525 →

Hörður Björnsson ÞH 260

264. Hörður Björnsson ÞH 260 ex Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línuskipið Hörður Björnsson ÞH 260 sést hér á myndinni að ofan við bryggju á Húsavík í dag en hann kom að landi í fyrrinótt. Eftir löndun var hafist handa við að taka veiðarfærin frá borði en innan skamms mun nýtt skip GPG … Halda áfram að lesa Hörður Björnsson ÞH 260 →

Stokksey ÁR 50

1245. Stokksey ÁR 50 ex Surtsey VE 2. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Stokksey ÁR 50 er hér á toginu um árið en upphaflega hét báturinn Surtsey VE 2 og var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972. Báturinn var smíðaður fyrir Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. og Erling Pétursson í Vestmannaeyjum. Í upphafi mældist hann 105 brl. að … Halda áfram að lesa Stokksey ÁR 50 →