1129. Sigurbjörg SH 48 ex Sigurbjörg SH 204. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurbjörg SH 48 var 17 brl. að stærð og smíðuð á Fáskrúðsfirði árið 1970. Upphaflega var hún upphaflega ST 55 með heimahöfn á Hólamvík. Báturinn hét Sigurbjörg alla tíð, ST til ársins 1994 er hún varð SH 204 og 1996 fékk hún það númer … Halda áfram að lesa Sigurbjörg SH 48
Flokkur: Bátar
Ársæll Sigurðsson HF 80
1097. Ársæll Sigurðsson HF 80 ex Guðrún Björg ÞH 355. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ársæll Sigurðsson HF 80 hét upphaflega Sæborg ÞH 55 og var smíðuð árið 1970 hjá Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri. Sæborg fékk nafnið Guðrún Björg ÞH 355 árið 1977 þegar ný og stærri Sæborg leysti hana af hólmi. Guðrún Björg var … Halda áfram að lesa Ársæll Sigurðsson HF 80
Haförn HU 4
1186. Haförn HU 4 ex Ásgeir ÞH 198. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Haförn HU 4 liggur hér við bryggju á Hvammstanga um árið en upphaflega hét báturinn Bliki EA 12 smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1971. Frá Dalvík fór báturinn til Ólafsvíkur og þaðan til Húsavíkur en árið 1985 var hann keyptur til Hvammstaga. Hér … Halda áfram að lesa Haförn HU 4
Siglunes ÞH 60
Siglunes ÞH 60 ex Siglunes HU 222. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Siglunes ÞH 60 kemur hér úr róðri um árið en báturinn var gerður út frá Húsavík árin 1987 til 1990. Dagur sagði svo frá 11. nóvember 1987 um komu bátsins til Húsavíkur: Siglunes ÞH 60, 101 tonna stálskip kom til heimahafnar á Húsavík á föstudagsmorguninn. … Halda áfram að lesa Siglunes ÞH 60
Dalaröstin við bryggju
1639. Dalaröst ÞH 40 ex Dalaröst ÁR 63. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Hér liggur Dalaröst ÞH 40 við bryggju á Húsavík í febrúarmánuði árið 2008 en þegar þarna var komið við sögu hafði Flóki ehf. keypt nýjan bát sem kom til heimahafnar daginn áður. Báturinn var smíðaður í Noregi 1978 en keyptur til landsins fjórum … Halda áfram að lesa Dalaröstin við bryggju
Hafdís SK 44
2323. Hafdís SK 44 ex Hafdís SK 4. Ljósmynd Vigfús Markússon. Hafdís SK 44 heitir í dag Grímsey ST 2 og er gerð út frá Drangsnesi en upphaflega hét báturinn Stapavík AK 132. Báturinn, sem er tæplega 60 BT að stærð, var smíðaður á Ísafirði 1998. Það var árið 2023 sem báturinn fékk nafnið Hafdís … Halda áfram að lesa Hafdís SK 44
Helgi Fló
93. Helgi Flóventsson ÞH 77. Mynd úr einkasafni. Þessi mynd sem var framkölluð í júlí 1964 sýnir Helga Flóventsson ÞH 77 koma að bryggju á Húsavík. Hann var smíðaður fyrir Svan h/f á Húsavík í Risör í Noregi árið 1962 og kom í stað minni báts sem sökk um 4,5 sjómílur norðvestur af Langanesi 4 … Halda áfram að lesa Helgi Fló
Freyja GK 364
1209. Freyja GK 364 ex Pólastjarnan KE 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Freyja GK 364 hét upphaflega Ólafur Sólimann KE 3 og var báturinn smíðaður hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernhardssonar á Ísafirði árið 1972. Árið 1977 fékk báturinn nafnið Pólstjarnan KE 3 en frá árinu 1980 hét hann Freyja GK 364 með heimahöfn í Garðinum. Árið 1988 … Halda áfram að lesa Freyja GK 364
Atlavík BA 108
1263. Atlavík BA 108 ex Örlygur KE 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Atlavík BA 108 hét upphaflega Sæfari EA 333 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972. Sæfari var með heimahöfn á Hauganesi og var gerður þaðan út til ársins 1977 en þá fékk hann nafnið Búi EA 100 með heimahöfn á Dalvík. … Halda áfram að lesa Atlavík BA 108
Muggur EA 26
Muggur EA 26 ex Haförn HU 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Muggur EA 26, sem kemur hér að bryggju á Húsavík sumarið 2000, var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1971 fyrir Dalvíkinga og hét upphaflega Bliki EA 12. Árið 1975 var Bliki seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Jói á Nesi SH … Halda áfram að lesa Muggur EA 26









