
Hér kemur línubáturinn Kristrún RE 177 að bryggju í Þorlákshöfn um árið en það var Fiskkaup hf. sem gerði bátinn út.
Upphaflega hét báturinn Ólafur Friðbertsson ÍS 34 frá Súgandafirði, smíðaður Flekkefjord í Noregi 1964.
Síðar Albert Ólafsson KE 39 og um tíma HF 39. Aftur KE 39 og síðan þetta nafn sem hann ber á myndinni.
Eftir að ný Kristrún var keypt til landsins árið 2008 varð þessi Kristrún II RE 477 en í pottinn fór hún árið 2014.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution