
Hér gefur að líta línuskipið Rifsnes SH 44 í slippnum á Akureyri um helgina en það erHraðfrystihús Hellisands sem gerir það út.
Það hét áður Polarbris og var smíðað árið 1999 í Noregi. Nánar tiltekið í Larsnes Mek. Verkstad A/S.
Rifsnesið, sem keypt var til landsins árið 2013, er 43 metrar að lengd, breiddin er níu metrar og það mælist 776 BT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution