
Magnús SH 205 frá Hellisandi kemur hér til hafnar á Húsavík í gærkveldi en hann hefur verið að drganótaveiðum á utanverðum Skjálfanda að undanförnu.
Það er Skarðsvík ehf. sem gerir bátinn út en upphaflega hét hann Garðar II SH 164 og var smíðaður fyrir Björn & Einar s/f í Ólafsvík í Slippstöðinni á Akureyri árið 1974.
1996 var báturinn seldur til Hornafjarðar en hélt nafninu og varð SF 164. Haustið 1999 var hann kominn til Vestmannaeyja þar sem hann fék nafnið Eyjaberg VE 62.
Í mars 2001 er hann skráður undir nafninu Sigurvon RE 64 og átti eftir að bera það nafn undir skráningunum SH 200 og BA 55 áður en Skarðsvík ehf. keypti hann til Hellisands árið 2003.
Magnús mælist 252 BT að stærð. Mesta lengd hans er 31,45 metrar og breiddin 6,70 metrar.



Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution