Ármann ÓF 38

286. Ármann ÓF 38 ex Ármann KÓ 26. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Ármann ÓF 38 var smíðaður á Akranesi árið 1927 og hét Ármann alla tíð en upphaflega var hann MB 5.

Báturinn var upphaflega 19 brl. að stærð en árið 1935 var hann lengdur og mældist þá 22 brl. að stærð.

Árið 1947 var umdæmisstöfum Ármanns breytt í AK 5 en síðar það sama ár var hann seldur til Reykjavíkur þar sem hann fékk einkennisstafina RE.

Frá árinu 1959 hét hann Ármann KÓ 26 en þrem árum síðar var báturinn seldur til Ólafsfjarðar og varð þá Ármann ÓF 38.

Þá skráningu bar Ármann allt til enda en hann var talinn óviðgerðarhæfur og felldur af skipaskrá 26. október 1988.

Meðfylgjandi mynd var tekin á Siglufirði annað hvort árið 1988 eða þá 1989.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd