
Þorkell Björn NS 123 frá Bakkafirði er hér við bryggju á Húsavík um árið en bátar þaðan komu stundum í slipp til Húsavíkur.
Þorkell Björn, sem var 17 brl. að stærð, hét upphaflega Ólafur Björn RE 45 og var smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1971.
Árið 1973 fékk báturinn nafnið Þorkell Björn SU 35 með heimahöfn á Eskifirði.
Þorkell Björn var keyptur til Húsavíkur gerður þaðan út árin 1976 – 1981 en þá var hann seldur til Bakkafjarðar og varð NS 123. Á Húsavík var Þorkell Björn ÞH 66.
Árið 1988 var Þorkell Björn NS 323 en ári síðar var hann seldur til Norðfjarðar og varð NK 110
Frá árinu 2003 hét hann Esther GK 47 með heimahöfn í Sandgerði og ári síðar fékk hann anfnið Auðbjörg SK 6 með heimahöfn á Hofsósi.
Frá árinu 2005 hét hann Auðbjörg HU 2 með heimahöfn á Skagaströnd og það nafn bar báturinn þegar hann var tekinn úr rekstri og felldur af skipaskrá 5. október 2010. Heimild: aba.is
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution