2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér koma fleir myndir af Harðbak EA 3 sem ég tók í gær. Nóg er nú til. Harðbakur er þriðja skipið sem Útgerðarfélag Akureyrar eignast með þessu nafni, hið fyrsta kom 1950, síðutogari smíðaður í Skotlandi. Sá næsti var skuttogari smíðaður á Spáni 1974 og sá nýjasti … Halda áfram að lesa Aðeins meira af Harðbak
Author: Hafþór Hreiðarsson
Donna Wood
Donna Wood í Scoresbysundi. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Donna Wood er tveggja mastra skonnorta í eigu Norðursiglingar á Húsavík og siglir m.a með farþega um Scoresbysund. Donna Wood var smíðuð árið 1918 og er því kominn á annað hundraðið í árafjölda. Hún var byggð sem vitaskip en árið 1990 var henni breytt í það horf … Halda áfram að lesa Donna Wood
Harðbakur EA 3 verður á dagatalinu 2020
2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. "Verður Harðbakur ekki á dagatalinu ?" var ég spurður að á Akureyri í dag. Svarið var stutt og laggott og það var styttra en nei. Harðbakur EA 3 verður á dagatali Skipamynda.com árið 2020 og verðugur fulltrúi þessara sjö systurskipa sem bætast í flotann á þessu ári. … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 3 verður á dagatalinu 2020
Í siglingu með Húna II EA 740
108. Húni II EA 740 kemur að bryggju eftir að hafa tekið á móti Harðbak hinum nýja. Ljósmynd Hafþór 2019. Í morgun bauðst mér að fara í siglingu með Húna II þegar báturinn sigldi til móts við nýja Harðbak EA 3. Steini Pje á brúarvængnum. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Það voru margir með myndavélina á … Halda áfram að lesa Í siglingu með Húna II EA 740
Harðbakur EA 3 kom til heimahafnar á Akureyri í morgun
2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Harðbakur EA 3, nýtt togskip Útgerðarfélags Akureyringa, kom til heimahafnar á Akureyri laust fyrir klukkan 11 í morgun. Harðbakur er fimmta skipið í raðsmíðaverkefni sem Vard-skipasmíðastöðin afhendir íslenskum útgerðum á þessu ári. Hin eru Vörður ÞH 44, Áskell ÞH 48, Vestmannaey VE 54 og Bergey VE 144. … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 3 kom til heimahafnar á Akureyri í morgun
Dalaröst ÞH 40
1639. Dalaröst ÞH 40 ex Dalaröst ÁR 63. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Dalaröst ÞH 40 kemur hér til hafnar á Húsavík um árið en báturinn var í eigu útgerðarfélagsins Flóka ehf. á Húsavík. Báturinn var smíðaður í Noregi 1978 en keyptur til landsins fjórum árum seinna og hét þá Rolant II. Hér á landi fékk hann … Halda áfram að lesa Dalaröst ÞH 40
Nukariit II GR-5-75 í Grindavík
OYWW. Nukariit II GR-5-75. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Grænlenski báturinn Nukariit II GR-5-75 kom til hafnar í Grindavík í morgun en hann er á leiðinni til Grænlands frá Danmörku þar sem hann var smíðaður. Báturinn, sem er 14,99 metra langur og 6,67 metra breiður, bíður af sér veður en áfangastaðurinn er Pamiut á vesturströnd Grænlands … Halda áfram að lesa Nukariit II GR-5-75 í Grindavík
Guðrún GK 47
2640. Guðrún GK 47 ex Arney BA 158. Ljósmynd Raufarhafnarhöfn 2019. Guðrún GK 47 komst í fréttir í morgun þegar báturinn strandaði við Rifstanga á Melrakkasléttu. Björgunarskipinu Gunnbjörg frá Raufarhöfn dró hann á flot og var komið með hann til Raufarhafnar að ganga hálf ellefu í morgun. Guðrún GK 47, sem er í eigu Skarfakletts … Halda áfram að lesa Guðrún GK 47
Jósef Geir ÁR 36 frá Stokkseyri
1266. Jósef Geir ÁR 36. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Jósef Geir ÁR 36, sem hér sést á mynd Tryggva Sigurðssonar, var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1972. Jósef Geir ÁR 36 var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Stokkseyrar hf. sem gerði bátinn út alla tíð. Báturinn var 47 brl. að stærð með heimahöfn á Stokkseyri. Jósef Geir … Halda áfram að lesa Jósef Geir ÁR 36 frá Stokkseyri
Kaldbakur EA 1 á frostköldum morgni
2891. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Gundi tók þessar myndir í morgun þegar Kaldbakur EA 1 sigldi af stað frá Akureyri áleiðis á miðin. Það var kalt við Eyjafjörð eins og sjá má á þessum myndum. 2891. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Kaldbakur var fyrstur í röðinni af fjórum systurskipum sem … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1 á frostköldum morgni









