2961. Breki VE 61. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Á þessum myndum Hólmgeirs Austfjörð má sjá tvo togara frá Vestmannaeyjum að veiðum á Vestfjarðarmiðum um síðustu helgi Þetta eru Vinnslustöðvartogarinn Breki VE 61 og Þórunn Sveinsdóttir VE 401 sem Ós ehf. gerir út. 2401. Þórunn Sveinsdóttir VE 401. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Með því að smella … Halda áfram að lesa Vestmannaeyingar á toginu
Author: Hafþór Hreiðarsson
Kristbjörg ÞH 44
1053. Kristbjörg ÞH 44 ex Kristjón Jónsson SH 77. Ljósmynd Reynir Jónasson Húsavík. ÞH 44 aftur og nýbúið. Hér koma tvær myndir Reynis Jónassonar skókaupmanns á Húsavík af Kristbjörgu ÞH 44. Þær voru þó ekki teknar um leið en á neðri myndinni eru kallarnair með fánann uppi og get ég mér þess til að myndin … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44
Vörður að veiðum
2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 tók þessar myndir á dögunum af togskipinu Verði ÞH 44 að veiðum. 2962. Vörður ÞH 44. Ljósmyndir Hólmgeir Austfjörð 2020. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the … Halda áfram að lesa Vörður að veiðum
Kópur ÞH 114
1099. Kópur ÞH 114. Ljósmynd Reynir Jónasson Húsavík. Kópur ÞH 114 liggur hér við bryggju á Húsavík og hygg ég að myndin hafi verið tekin þegar báturinn kom nýr til Húsavíkur. Kópur, sem var 12 brl. að stærð og smíðaður í Skipasmíðastöð KEA, var afhentur eiganda sínum Gesti Halldórssyni á Húsavík skömmu fyrir páska árið … Halda áfram að lesa Kópur ÞH 114
Freyja ÞH 125
421. Freyja ÞH 125 ex Freyja KE 42. Ljósmynd Reynir Jónasson Húsavík. Freyja ÞH 125, sem sést á þessum myndum Reynis Jónassonar á Húsavík, var smíðuð í Danmörku árið 1930. Báturinn, sem var 23 brl. að stærð búinn 76 hestafla Tuxhamvél, hét upphaflega Sigurður Gunnarsson GK 525. Hann var smíðaður fyrir Guðmund Sigurðsson, Gunnar Sigurðsson … Halda áfram að lesa Freyja ÞH 125
Reginn HF 228
647. Reginn HF 228 ex Helga Björg HU 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Reginn HF 228, sem sést á þessum myndum koma til hafnar í Þorlákshöfn, hét upphaflega Kristján SH 6 og var smíðaður árið 1961 í Skipasmíðastöðinni hf. í Stykkishólmi. Á síðunni Bátasmíði.is segir um helgina að Kristján SH 6 sé nú kominn heim því … Halda áfram að lesa Reginn HF 228
Steinunn og Þinganes
2966. Steinunn SF 10 og 2970. Þinganes SF 25 í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Ágúst Guðmundsson 2020. Ágúst Guðmundsson tók þessar myndir um helgin en þær sýna nýjustu skip Hornfirðinga við bryggju í Hafnarfirði. Steinunn SF 10 og Þinganes SF 25 eru í hópi sjö systurskipa sem norska skipasmíðastöðin VARD smíðaði fyrir íslenskar útgerðir. 2966. Steinunn SF … Halda áfram að lesa Steinunn og Þinganes
Akurey á toginu
2890. Akurey AK 10. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Skuttogarinn Akurey AK 10 er hér á toginu í dag en hún var smíðuð árið 2017 í Tyrklandi fyrir HB Granda hf. Hún er eitt þriggja systurskipa sem HB Grandi lét smíða í Céliktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul en Engey, sem kom fyrst, var seld úr landi. Akurey AK 10 er … Halda áfram að lesa Akurey á toginu
Elín Þorbjarnardóttir ÍS 700
1482. Elín Þorbjarnardóttir ÍS 700. Ljósmynd Sigtryggur Georgsson. Hér gefur að líta skuttogarann Elínu Þorbjarnardóttur ÍS 700 frá Suðureyri á toginu. Elín Þorbjarnardóttir ÍS 700 var smíðuð í Stálvík hf.við Arnarvog og sjósett 8. mars árið 1977. Hún var smíðuð fyrir Hlaðsvík hf. á Suðureyri en framkvæmdastjóri þess félags var Einar Ólafsson og skipstjórinn á … Halda áfram að lesa Elín Þorbjarnardóttir ÍS 700
Birtingur NK 119
1495. Birtingur NK 119 ex Delos. Ljósmynd Sigtryggur Georgsson. Birtingur NK 119 er hér á toginu á mynd Sigtryggs Georgssonar en togarinn var keyptur til landsins frá Frakklandi árið 1977. Í 21-22 tbl. Ægis 1977 sagði m.a um Birting NK 119: 19. september sl. kom skuttogarinn Birtingur NK 119 í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar, … Halda áfram að lesa Birtingur NK 119









