1227. Pétur Jacob SH 37 ex Þrái HF 127. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Pétur Jacob SH 37, sem hér sést koma að landi í Ólafsvík, hét upphaflega Þytur NS 22 og var smíðaður árið 1972 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Báturinn sem var tæplega 12 brl.. að stærð var smíðaður fyrir Þyt h/f á … Halda áfram að lesa Pétur Jacob SH 37
Author: Hafþór Hreiðarsson
Dagstjarnan KE 3
1558. Dagstjarnan KE 3 ex Rán HF 342. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér má sjá skuttogarann Dagstjörnuna KE 3 við bryggju í Njarðvík en hún hét áður Rán HF 342. Upphaflega hét togarinn þó C.S Forester og var smíðaður árið 1969 en keyptur hingað til lands árið 1980. Þá sagði m.a í Ægi: 4. maí s.l. … Halda áfram að lesa Dagstjarnan KE 3
Inga NK 4
2395. Inga NK 4 ex Ásdís GK 218. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Inga NK 4 frá Norðfirði kom til Húsavíkur í marsmánuði árið 2011 en báturinn var að kanna sæbjúgnamið við Norðurland. Ekki löngu seinna þetta ár var báturinn, sem upphaflega hét Brík BA 2 og var tæplega 30 brl. að stærð. seldur til Noregs. … Halda áfram að lesa Inga NK 4
Við bryggju í Bermeo í Baskalandi
IMO: 8737556. Izurdia Maitea. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Á ferð okkar um Baskaland sl. sumar áðum við um stund í hafnarbænum Bermeo og þá tók ég þessa mynd af fiskibátnum Izurdia Maitea sem lá þar við bryggju. Báturinn var smíðaður árið 1998 hjá Astilleros Cardama, S.A. í Vigo og er 107 GT að stærð. Lengd … Halda áfram að lesa Við bryggju í Bermeo í Baskalandi
Páll Jónsson lét úr höfn í dag
2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Konungur línuveiðaranna, eins og Jón Steinar kallar hann, Páll Jónsson GK 7 lét úr höfn í Grindavík um kaffileytið í dag. Hann kom úr stuttum prufutúr sl. fimmtudag og meðan að óveðrið gekk yfir var tíminn nýttur í að laga og betrumbæta ýmislegt smálegt sem menn … Halda áfram að lesa Páll Jónsson lét úr höfn í dag
Ísfirðingar á Húsavík
1148. Bára ÍS 66 - 1787. Stundvís ÍS 883. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það bar við á Húsavík sumarið 1993, ef ég man rétt, að bátar frá Ísafirði lönduðu úthafsrækju á Húsavík. Þá er ég að tala um báta af minni gerðinni sem hétu Bára ÍS 66, Stundvís ÍS 883 og Halldór Sigurðsson ÍS 14. Bára … Halda áfram að lesa Ísfirðingar á Húsavík
Kristey ÞH 25
1420. Kristey ÞH 25 ex Kristbjörg ÞH 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kristey ÞH 25 kemur hér til hafnar á Húsavík um árið en hún hefur verið á dragnótaveiðum þegar myndirnar voru teknar. Báturinn var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1975 fyrir Korra h/f á Húsavík og hét Kristbjörg ÞH 44. Báturinn var seldur Höfða h/f … Halda áfram að lesa Kristey ÞH 25
Kristín lét úr höfn í morgun
972. Kristín GK 457 ex Kristín ÞH 157. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Það var þungur sjór í honum þegar að línuskipið Kristín GK 457 lét úr höfn í Grindavík um kl. 11 í morgun. Jón Steinar tók meðfylgjandi myndir af þessu elsta línuskipið Vísis hf. sem upphaflega hét Þorsteinn RE 303 og var smíðað í … Halda áfram að lesa Kristín lét úr höfn í morgun
Glæsilegur floti
Glæsilegur floti nýrra skipa í Grindavíkurhöfn. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Á þessari mynd Jóns Steinars frá því í gær má sjá þrjú af nýjustu skipum flotans við bryggju í Grindavík. Fremstur er línuveiðarinn Páll Jónsson GK sem smíðaður var fyrir Vísi í Póllandi og aftan við hann systurskipin Vörður ÞH 44 og Áskell ÞH 48. … Halda áfram að lesa Glæsilegur floti
Litli Hamar SH 222
1773. Litli Hamar SH 222 ex Erna RE 47. Ljósmynd Alfons Finnsson. Á þessum myndum Alfons Finnssonar sjáum við Litla Hamar SH 222 sem upphaflega hét Erna RE 47 og var smíðuð á Akranes árið 1987. Erna RE 47 var smíðuð hjá Bátasmiðjunni Knörr fyrir Hrein Hreinsson í Reykjavík en 1998 fær hann nafnið Litli … Halda áfram að lesa Litli Hamar SH 222









