6877. Píla BA 76 ex Góa BA 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Píla BA 76 var gerð út til strandveiða í sumar og voru þessar myndir teknar þegar báturinn kom til Patreksfjarðar úr einum róðrinum. Píla hét upphaflega Vöttur SU 41 frá Reyðarfirði og var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar árið 1987. Frá árinu 1993 til … Halda áfram að lesa Píla BA 76
Author: Hafþór Hreiðarsson
Meira af Ivid
IMO 9195779. Ilivid GR-18-318 ex Skipsholmen H-425-AV. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2020. Tryggvi Sigurðsson var einnig með myndavélina á lofti í morgun þegar Guðmundur Ingi og áhöfn hans á Ilvid litu við í Eyjum. Eins og fram kemur í færslunni hér á undan er það Arctic Prime Fisheries á Grænlandi sem á skipið sem keypt var … Halda áfram að lesa Meira af Ivid
Ilvid kom við í Eyjum
IMO 9195779. Ilvid GR-18-318 ex Skipsholmen H-425-AV. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Ilvid GR-18-318 sem Arctic Prime Fisheries á Grænlandi keypti nýverið frá Noregi er á leið til Reykjavíkur þar sem skipið verður útbúið til veiða. Brim er hluthafi í Arctic Prime Fisheries og Vestmannaeyingurinn Guðmundur Ingi Guðmundsson er skipstjóri á Iivid. Þegar skipið var við … Halda áfram að lesa Ilvid kom við í Eyjum
Bjarni Sæmundsson HF 30 – Myndasyrpa
1131. Bjarni Sæmundsson HF 30 ex RE 30. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson HF 30 kom til Húsavíkur í gær en skipið er í árlegum haustleiðangri Hafrannsóknarstofnunar. Um Bjarna Sæmundsson er það að segja að skipið var smíðað í Þýskalandi árið 1970 og afhent Hafrannsóknastofnun í desember sama ár. Skipið er 56 metra langt … Halda áfram að lesa Bjarni Sæmundsson HF 30 – Myndasyrpa
Krossanes SU 5
177. Krossanes SU 5 ex Bergvík VE 505. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Krossanes SU 5 kom nokkuð til Húsavíkur þegar það var gert út til úthafsrækjuveiða af Goðaborg hf. á Fáskrúðsfirði. Báturinn hefur borið mörg nöfn í gegnum tíðina en heitir Fönix ST 177 í dag. Upphaflega hét hann Seley SU 10 og var smíðaður í … Halda áfram að lesa Krossanes SU 5
Geir SH 217
1739. Geir SH 217 ex Sigrún ÍS 900. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geir SH 217 er hér að færa sig til í Reykjavíkurhöfn um árið, sennilega eftir löndun á markað. Geir SH 217 hét upphaflega Sigrún ÍS 900 á íslenskri skipaskrá og var fyrst í eigu Theodórs Nordquist og Svavars Péturssonar og síðar Ásrúnar hf. á … Halda áfram að lesa Geir SH 217
Ísfélagið kaupir Hardhaus
IMO 9263526. Hardhaus H-120-AV. Ljósmynd Þór Jónsson 2018. Ísfélag Vestmannaeyja hefur fest kaup á uppsjávarskipinu Hardhaus sem smíðað var í Noregi árið 2003. Eyjafréttir greina frá þessu en þar segir jafnframt: Skipið er útbúið bæði til flottrolls- og nótaveiða. Það er 68,8 metra langt og 13,8 metra breitt. Í því er 6.120 hestafla aðalvél af … Halda áfram að lesa Ísfélagið kaupir Hardhaus
Dráttarbáturinn Phoenix
IMO 9793155. Phoenix. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2020. Elvar Jósefsson tók þessar myndir sem nú birtast af dráttarbátnum Phoenix sem leysir af nýja Magna sem hafnsögubátur hjá Faxaflóahöfnum. Með myndunum fylgdu eftirfarandi upplýsingar: Phoenix IMO nr..: 9793155Flokkunarfélag..: Bureau Veritas. Tegund..: Dráttarbátur / Hafnsögubátur. Afhendingarár..: Janúar 2018Smíðastöð..: Damen Song Cam Shipyard / Damen Shipyard Gorinchem. Smíðastaður..: Víetnam … Halda áfram að lesa Dráttarbáturinn Phoenix
Rauð fiskiskip í Húsavíkurhöfn
1009.Kristbjörg ÞH 44 ex Kristbjörg II ÞH 244. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér má sjá, og eða í, þrjú rauð fiskiskip í Húsavíkurhöfn um árið. Kristbjörg ÞH 44 er að koma að bryggju. Júlíus Havsteen ÞH 1 er við bryggjuna og sést í stefni hans og brú. Í bakgrunni sést í Aldey ÞH 110 en hún … Halda áfram að lesa Rauð fiskiskip í Húsavíkurhöfn
Hafborg og Haftindur
625. Hafborg HF 64 - 472. Haftindur HF 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggja saman í Hafnarfjarðarhöfn um árið tveir bátar sem eiga það sameiginlegt m.a að hafa verið gerðir út frá Húsavík. Sá sem innar liggur er Hafborg HF 64 sem upphaflega hét Jökull SH 126 og var smíðaður á Akureyri. Utan á Hafborginni … Halda áfram að lesa Hafborg og Haftindur









