3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Hulda Björnsdóttir GK 11 leggur hér upp í veiðiferð frá Grindavík sl. þriðjudag eftir að hafa landað um 112 tonn tonna afla sínum fyrr um daginn. Til fróðleiks má geta þess að togarinn landaði rétt rúmum 5000 tonnum í Grindavíkurhöfn á síðastliðnu ári. Hulda Björnsdóttir … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11
Author: Hafþór Hreiðarsson
Óli á Stað
2842. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Jón Steinar 2026. Jón Steinar tók þessar myndir af línubátnum Óla á Stað GK 99 koma úr róðri á dögunum. Það er Stakkavík ehf. í Grindavík sem á og gerir Óla á Stað út. Hann var smíðaður fyrir fyrirtækið hjá Seiglu á Akureyri og afhentur vorið 2017. Hann … Halda áfram að lesa Óli á Stað
Kristbjörg VE 70
1135. Kristbjörg VE 70 ex Þórunn Sveinsdóttir VE 901. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Kristbjörg VE 70 hét upphaflega Þórunn Sveinsdóttir VE 401 og var smíðuð fyrir Ós hf. í Stálvík í Garðarbæ 1971. Báturinn var yfirbyggður, lengdur og skipt um brú á þeim tíma sem hann bar nafnið Þórunn Sveinsdóttir. Vinnslustöðin kaupir bátinn árið 1992 þegar … Halda áfram að lesa Kristbjörg VE 70
Stakkhamar SH 220
2902. Stakkhamar SH 220. Ljósmynd Vigfús Markússon. Stakkhamar SH 220 var smíðaður hjá Siglufjarðar-Seig fyrir Kristinn J. Friðþjófsson ehf. á Rifi árið 2015. Báturinn er tæp 30 BT að stærð og gerður út á línu. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Stakkhamar SH 220
Dúa sökk í höfninni í Grindavík
617. Dúa RE 400 ex Eiríkur Rauði ÍS 157. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Hér gefur að líta Dúu RE 400 á mynd Jóns Steinars frá því um heligna þar sem hún liggur sokkin við bryggju í Grindavík. Báturinn var smíðaður í Þýskalandi árið 1959 fyrir Miðnes hf. í Sandgerði og hét upphaflega Jón Gunnlaugs … Halda áfram að lesa Dúa sökk í höfninni í Grindavík
Fanney EA 48
2800. Fanney EA 48 ex Tryggvi Eðvars SH 2. Ljósmynd Haukur Sigtryggur. Fanney EA 48 hét áður Tryggvi Eðvars SH 2 var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 2010. Báturinn var seldur norður í Hrísey í árslok 2020 og fékk hann nafnið Fanney EA 48. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Fanney EA 48
Guðbjörg kemur að landi
3020. Guðbjörg GK 9. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Jón Steinar tók þessar myndir í gær en þær sýna línubátinn Guðbjörgu GK 9 koma að landi í Grindavík. Guðbjörg GK 9 er 13 metra löng og 5,5 metra breið, smíðuð úr stáli og áli en skrokkur bátsins er úr stáli neðan millidekks og ofan þess er smíðin öll … Halda áfram að lesa Guðbjörg kemur að landi
Nýsmíði sjósett í Noregi
Nýsmíði sjósett í Noregi. Ljósmynd úr einkasafni. Hér birtist mynd sem sýnir Norðmenn sjósetja nýsmíði sem síðar fékk nafnið Héðinn ÞH 57 og var smíðaður fyrir Hreifa hf. á Húsavík. Héðinn ÞH 57 kom til heimahafnar á Húsavík undir lok júlímánaðar árið 1960 og var gerður út af Hreifa hf. til ársins 1965. Nýr stærri … Halda áfram að lesa Nýsmíði sjósett í Noregi
Skálaberg ÞH 244
1053. Skálaberg ÞH 244 ex Kristbjörg II ÞH 244. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skálaberg ÞH 244 hét upphaflega Kristjón Jónsson SH 77 frá Ólafsvík en báturinn var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1967. Báturinn var keyptur til Húsavíkur í byrjun árs 1969 og fékk nafnið Kristbjörg ÞH 44. Þegar ný Kristbjörg kom 1975 fékk þessi … Halda áfram að lesa Skálaberg ÞH 244
Maron GK 522
2093. Maron GK 522 ex Maron AK 94. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Maron GK 522, sem kemur hér að landi í Grindavík vorið 2005, hét upphaflega Sigrún HU 46 og var smíðaður á Blönduósi árið 1990. Árið 1993 var báturinn seldur á Akranes þar sem hann fékk nafnið Maron AK 94. Árið 1997 er Maron … Halda áfram að lesa Maron GK 522









