
Björn Kristjónsson SH 164 er hér við bryggju í Ólafsvík en þaðan var báturinn gerður út árin 1998-2000.
Báturinn hét upphaflega Freyr ST 11 og var smíðaður hjá Vélsmiðju Ol Olsen í Njarðvík árið 1989.
Árið 1993 fékk báturinn nafnið Njörður KE 208 með heimahöfn í Njarðvík og fimm árum síðar fékk hann nafnið Björn Kristjónsson SH 164 með heimahöfn í Ólafsvík
Árið 2000 fékk báturinn nafnið Kópanes SH 164 og hefur heitið því nafni upp frá því en borið einkennisstafina EA 164, RE 164 og frá árinu 2014 ÍS 196.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.