
Sigurður Davíðsson tók þessa mynd á Akureyri í dag og sýnir hún þrjú systurskip sem smíðuð voru á sínum tíma í Tyrklandi.
Við slippkantinn liggja Björg EA 7 og Kaldbakur EA 1 og dráttarbátarnir Mjölnir og Seifur er að slefa Drangey inn í höfnina.
Fjórða systurskipið, Björgúlfur EA 312, var ekki langt undan en hann liggur við ÚA bryggjuna.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution