1515. Manni ÞH 81 ex Sigurfari ÍS 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Manna ÞH 81 frá Þórshöfn þar sem hann stendur uppi við slippinn á Húsavík. Manni hét upphaflega Kópur ÍS 10 og var smíðaður árið 1978 af Baldri Halldórssyni bátasmið á Hlíðarenda við Akureyri. Hans fyrsta heimahöfn var Suðureyri við Súgandafjörð … Halda áfram að lesa Manni ÞH 81
Author: Hafþór Hreiðarsson
Faldur ÞH 153
1267. Faldur ÞH 153 ex Votaberg ÞH 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér leggur Faldur ÞH 153 upp í siglingu til Þórshafnar eftir að hafa verið í slipp á Húsavík. Myndin var tekin á síðari hluta tíunda áratugs síðustu aldar. Faldur hét upphaflega Votaberg ÞH 153 og var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. í Vestmannaeyjum og lauk … Halda áfram að lesa Faldur ÞH 153
Hafdís ÞH 12
5434. Hafdís ÞH 12. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Baldur Pálsson bátasmiður á Húsavík smíðaði Hafdísi ÞH 12 fyrir Jóstein Finnbogason árið 1951 og var hún sveinstykki Baldurs í bátasmíðinni. Hafdís var smíðuð úr furu og eik, opinn súgbyrðingur 1,36 brl. að stærð. Jósteinn hana alla tíð en hann gaf Sjóminjasafninu á Húsavík bátinn árið 1993. Með … Halda áfram að lesa Hafdís ÞH 12
Árný ÞH 98
5481. Árný ÞH 98 ex Vilborg ÞH 98. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér kemur Árný ÞH 98 úr róðri um árið en Gestur Halldórsson átti bátinn á árunum 1982-1988. Það birtist á síðunni í gær mynd af bátnum undir sínu upphaflega nafni, sem var Ásgeir ÞH 98, en á þessari mynd virðist vera búið að skipta … Halda áfram að lesa Árný ÞH 98
Kaldbakur EA 1
2981. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Kaldbakur EA 1, togari Útgerðarfélags Akureyringa, kom inn til löndunar í Hafnarfirði í gær og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Kaldbakur var fyrstur í röðinni af fjórum systurskipum sem smíðuð voru hjá Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Hin eru Björgúlfur EA 312, Drangey SK 2 og Björg EA 7. … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1
Jón Ásbjörnsson á landleið
2755. Jón Ásbjörnsson RE 777 ex Ragnar SF 550. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Jón Steinar tók þessar myndir í morgun af Jóni Ábjörnssyni RE 777 sullast á móti austanbárunni á landleið til Grindavíkur í morgun. Aflinn hjá honum var um 7-8 tonn eftir tæpar tvær lagnir. Jón Ásbjörnsson RE 777 var smíðaður í Bátagerðinni Samtak … Halda áfram að lesa Jón Ásbjörnsson á landleið
Ásgeir ÞH 98
5481. Ásgeir ÞH 98. Ljósmynd úr safni Viðars Eiríkssonar. Ásgeir ÞH 98 var smíðaður af Svavari Þorsteinsyni skipasmið á Akureyri árið 1961. Hann smíðaði bátinn fyrir Þórð Ásgeirsson og Magnús Andrésson á Húsavík en Ásgeir var tæplega 5 brl. að stærð. Doddi og Maggi áttu bátinn í tíu ár en þá seldu þeir hann Hreiðari … Halda áfram að lesa Ásgeir ÞH 98
Moby Dick
46. Moby Dick ex Fjörunes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kemur hér úr ferð út á Skjálfandaflóa en það var Arnar Sigurðsson sem gerðu bátinn út á sínum tíma. Upphaflega Djúpbáturinn Fargranes sem smíðaður var í Florø í Noregi árið 1963 og mældist þá 134 brl. að stærð. Moby Dick kom til Húsavíkur sumarið … Halda áfram að lesa Moby Dick
Barents Gadus
Barents Gadus TF-28-TN í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Maggi Jóns sendi þessa mynd af nýjum bát frá Trefjum í Hafnarfjarðarhöfn. Þarna er um að ræða Cleopatra 36 sem ber nafnið Barents Gadus. Þarna er um að ræða Cleopatra 36 sem ber nafnið Barents Gadus en við fáum fljótlega nánaru upplýsingar um bátinn. Með því … Halda áfram að lesa Barents Gadus
V/S Freyja og Gummi St.
3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Varðskipið Freyja kom til hafnar á Húsavík nú undir kveld og voru þessar myndir teknar við það tækifæri. Varðskipið Freyja er 86 metra langt og 20 metra breitt, smíðað árið 2010 og var keypt til Íslands árið 2021. Bátsmaðurinn á Freyju, Guðmundur St. Valdimarsson var á … Halda áfram að lesa V/S Freyja og Gummi St.









