Wilson Perth við Bökugarðinn

IMO 9287766. Wilson Perth ex Arklow Resolve. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Perth kom til Húsvíkur í gærkveldi og lagðist að Bökugarðinum þar sem skipað er upp hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka. Wilson Perth var smíðað í Hollandi árið 2004 og er 90 metra að lengd. Breidd þess er 14,2 metrar og það mælist 2,999 … Halda áfram að lesa Wilson Perth við Bökugarðinn →

Ný Clepopatra 36 til Noregs

Varde VL-94-AV. Ljósmynd Trefjar 2024. Útgerðarfélagið Tøkje Båt AS í Austevoll í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það er Ole Tøkje sem stendur að útgerðinni en hann verður jafnframt skipstjóri á bátnum. Nýj báturinn heitir Varde og er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 … Halda áfram að lesa Ný Clepopatra 36 til Noregs →

Áskell að draga netin

298. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1982. Áskell ÞH 48 frá Grenivík er hér að draga netin á vetrarvertíð árið 1982. Áskell ÞH 48 var smíðaður fyrir Gjögur h/f á Grenivík í Danmörku 1959, ári eftir að fyrirtækið missti Von TH 5. Von strandaði við Reykjanes árið 1958, mannbjörg varð en báturinn eyðilagðist. Áskell … Halda áfram að lesa Áskell að draga netin →

Heiðrún ÍS 4

1506. Heiðrún ÍS 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Heiðrún ÍS liggur hér í Reykjavíkurhöfn um árið og aftan við hana má sjá Bjarma frá Tálknafirði. Heiðrún, sem var 294 brl. að stærð, var smíðuð árið 1978 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar h/f á Ísafirði fyrir Völustein h/f í Bolungarvík. Togarinn var búinn 1450 hestafla Alpha aðalvél. … Halda áfram að lesa Heiðrún ÍS 4 →