
Netabáturinn Ingólfur GK 148 er hér að færa sig til eftir löndun í Sandgerðishöfn vorið 2001.
Í bakgrunni má líta fríðan flota báta og þar er Sigþór ÞH 100 stærstur.
Ingólfur GK 148 hét upphaflega Gæfa VE 11 og var smíðaður úr plasti í Englandi árið 1988. Tæplega 9 brl. að stærð.
Var í Vestmannaeyjum fram til ársins 1999 en þá var báturinn seldur til Ísafjarðar. Í Eyjum bar hann auk Gæfunafnsins nöfnin Svala, Góa, Sæfaxi og Sigurbára.
Báturinn var kominn í Sandgerði snemma árs 2001 þar sem hann fékk nafnið Ingólfur en í desember sama ár fékk hann nafnið Svala Dís KE 29. Á Suðurnesjunum var báturinn til ársins 2006 og bar síðustu tvö árin nafnið Happi KE 11.
Frá Keflavík fór báturinn aftur til Vestmannaeyja og fékk nafnið Æskan VE 222.
Síðar varð hann Æskan RE 222 og því næst Æskan GK 506 áður en hann fékk nafnið Haraldur MB 18 árið 2016. Það nafn ber hann enn þann dag í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.