102. Kristinn Friðrik SI 5 ex Kristinn Friðrik GK 58. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Kristinn Friðrik SI 5 landaði á Húsavík í desembermánuði árið 2004 og þá var þessi mynd tekin. Skipeyri ehf. gerði bátinn út og en hann bar SI skráninguna um tíu mánaða skeið. Haukur Sigtryggur sendi eftirfarandi miða um árið: 0102….Hrafn Sveinbjarnarson … Halda áfram að lesa Kristinn Friðrik SI 5
Author: Hafþór Hreiðarsson
Mímir, Sigþór og Geiri Péturs
1694. Mímir RE 3, 185. Sigþór ÞH 100, 1825. Geiri Péturs ÞH 344. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd sýnir skólaskipið Mími RE 3, Sigþór ÞH 100 og Geira Péturs ÞH 344 við bryggju á Húsavík. Myndin var tekin að haustlagi, sennilega ca. 1989. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Mímir, Sigþór og Geiri Péturs
Faldur á Skjálfanda
Faldur ex Faldur ÞH 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Faldur er hér á landleið úr hvalaskoðunarferð á Skjálfanda í hádeginu í dag. Faldur hét upphaflega Votaberg ÞH 153 og var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. í Vestmannaeyjum. Hér má lesa nánar um bátinn sem gerður er út af Gentle Giants. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Faldur á Skjálfanda
Gjafar VE 300 í Flatey
240. Gjafar VE 300. Ljósmynd úr einkasafni. Nú birtast hér tvær myndir af Gjafari VE 300 í Flatey á Skjálfanda sumarið 1965. (Miðað við framköllun myndanna) en þær eru úr einkasafni. Þá fylgir ein mynd til, einnig tekin í Flatey, af Gjafar VE 300 sem var á undan þessum sem hér um ræðir. Um þann … Halda áfram að lesa Gjafar VE 300 í Flatey
Sisimiut við Grindavík
Sisimiut GR 6-18. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Grænlenski frystitogarinn Sisimiut GR 6-18 kom upp að ströndum Íslands í kvöld nánar tiltekið við Grindavík. Jón Steinar sendi drónann til móts við hann og tók meðfylgjandi myndir af togaranum sem var smíðaður árið 2019 hjá skipasmíðastöðinni í Astilleros de Murueta í Bilbao á Spáni. Sisimiut er er … Halda áfram að lesa Sisimiut við Grindavík
Sirrý EA hét eitt sinn Vinur ÞH 73
5463. Sirrý ex Gúsi P SH 35. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Sirrý EA siglir hér á Akureyrarpolli sl. sunnudag en báturinn tók þátt í skemmtisiglingu Sjómannadagsins. Saga bátsins, sem smíðaður var í húsakynnum Nóa Kristjánssonar, skipasmiðs árið 1968 af Rögnvaldi Árnasyni, húsgagnasmiði Akureyri og syni hans Þorkeli, er býsna löng og er ítarlega farið yfir … Halda áfram að lesa Sirrý EA hét eitt sinn Vinur ÞH 73
Villi Páls heiðraður af Landsbjörgu
Vilhjálmur Pálsson með heiðursviðurkenninguna frá Landsbjörgu. Aðsend mynd. Vilhjálmi Pálssyni var á aðalfundi björgunarsveitarinnar Garðars í kvöld veitt heiðursviðurkenning Slysavarnarfélagsins Landsbjargar fyrir störf sín í þágu björgunarstarfa og slysavarna. Björgunarsveitin Garðar var stofnuð árið 1959 í kjölfar sjóslyss þegar Maí TH194 fórst með tveimur mönnum. Þá var hávær umræða í samfélaginu um öryggismál sjómanna. Formaður … Halda áfram að lesa Villi Páls heiðraður af Landsbjörgu
Gerpir NK 111 í slipp á Akureyri
1453. Gerpir NK 111 ex Jón Björn NK 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Gerpir NK 111 er hér í slipp á Akureyri en báturinn var seldur til Húsavíkur á dögunum. Það segir frá sölunni á vef Austurfrétta en seljandi er SÚN í Neskaupstað sem eignaðist bátinn árið 2003. Hann var í fyrstu nýttur til að … Halda áfram að lesa Gerpir NK 111 í slipp á Akureyri
Hebridean Sky
IMO 8802882. Hebridean Sky ex Sea Explorer I. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Hebridean Sky kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagðist að Þvergarðinum. Skipið, sem er í eigu Noble Caledonia, var smíðað árið 1991 í skipasmíðastöðinni Nuovi Cantieri Apuania á Ítalíu. Það er svokallað leiðangursskip og tekur 120 farþega. Hebridean Sky er 4,200 … Halda áfram að lesa Hebridean Sky
Sigurvon EA
7343.Sigurvon EA ex Kópur BA 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Sigurvon EA hét upphaflega Særoði ST 51 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1992. Heimahöfn Særoðans var Hólmavík en árið 1993 fékk hann nafnið Ösp ST 22. Árið 2005 fékk báturinn nafnið Kópur BA 152 og heimahöfn hans Flatey á Breiðafirði. Samkvæmt vefnum … Halda áfram að lesa Sigurvon EA









