Skemmtisigling Grindvíkinga

Skemmtisigling Grindvíkinga á Sjómannadaginn. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Hefð er fyrir því í Grindavík að Sjómannafélag Grindavíkur og útgerðarmenn þar í bæ bjóði gestum og gangandi í skemmtisiglingu í tilefni af sjómannadeginum. Í ár bauðst gestum að sigla með Vísisbátunum Páli Jónssyni GK 7 og Sighvati GK 57 og samkvæmt ljósmyndaranum viðraði vel á mannskapinn … Halda áfram að lesa Skemmtisigling Grindvíkinga

Sextugur Húni II í skemmtisiglingu

108. Húni II EA 740 ex Húni II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér kemur Húni II EA 740 úr einni af skemmtisiglingum Sjómannadagsins hann fór í þær nokkrar í dag. Sextugur unglingurinn en í þeirri fyrstu fór hann fyrir flota smábáta og hafnsögbátarnir voru með í för. Síðan fór hann amk. í tvígang í siglingu … Halda áfram að lesa Sextugur Húni II í skemmtisiglingu

Til hamingju með daginn sjómenn

2450. Hrönn ÞH 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Með þessari mynd sem sýnir Hrönn ÞH 36 í skemmtisiglingu á Skjálfanda árið 2001 sendi ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni Sjómannadagsins. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Til hamingju með daginn sjómenn

Sextugur Knörrinn kemur að

306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Körrinn er byrjaður siglingar með ferðamenn þetta árið en myndin var tekin í dag þegar hann kom úr hvalaskoðunarferð á Skjálfanda. Þann 9. mars sl. voru 60 ár síðan báturinn var sjósettur hjá Slippstöðinni á Akureyri en hann hét upphaflega Auðunn EA 157. Hann var smíðaður … Halda áfram að lesa Sextugur Knörrinn kemur að

Seaborn Ovation á Skjálfanda

IMO 9764958. Seaborn Ovation . Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Skemmtiferðaskipið Seaburn Ovation kom snemma í morgun inn á Skjálfanda og lagðist við ankeri skammt undan Húsavík þangað sem farþegar skipsins voru ferjaðir með skipsbátum. Skipið, sem var smíðað árið 2018 í Genóa á Ítalíu, hélt síðan áfram ferð sinni síðdegis. Seaborn Ovation er 41,865 GT … Halda áfram að lesa Seaborn Ovation á Skjálfanda

Ný Cleopatra 36 til Tana í Noregi

Barent Gadus TF-28_TN. Ljósmynd Trefjar 2023. Piera Gaup útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Piera verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem ber nafnið Barent Gadus.  Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn. Hann leysir af hólmi eldri Cleopatra 36 bát sem útgerðin hefur … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Tana í Noregi

Spitsbergen kom til Húsavíkur í morgun

IMO 9434060. Spitsbergen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Spitsbergen kom ti Húsavíkur í morgun en það er gert út af Hurtigruten í Noregi. Spitsbergen var smíðað árið 2009 hjá skipasmíðastöðinni Estaleiro Navais de Viana do Castelo í Viana do Castelo í Portúgal. Skipið var allt endurnýjað árið 2016 en það tekur 335 farþega. Spitzbergen er … Halda áfram að lesa Spitsbergen kom til Húsavíkur í morgun

Seaventure kom til Húsavíkur

IMO: 8907424. Seaventure ex Bremen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Seaventure kom til Húsavíkur skömmu fyrir hádegi í dag og mun vera í höfn þangað til síðdegis á morgun. Seaventure hét áður Bremen og var smíðað í Japan árið 1990. Það hét Frontier Spirir fyrstu þrjú árin en síðan Bremen til ársins 2020. Það mælist 6,752 … Halda áfram að lesa Seaventure kom til Húsavíkur