
Strandveiðibáturinn Ari Óskar ÍS 127 kemur hér til hafnar á Suðureyri við Súgandafjörð í sumar en þar er hans heimahöfn.
Báturinn var smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak hf. í Hafnarfirði árið 1987 og fékk nafnið Stapavík NS 78.
Frá árinu 1993 hét báturinn Von SK 88 með heimahöfn Selvík á Skaga en árið 2012 fékk hann nafnið Ágústa EA 16 með heimahöfn á Árskósgssandi.
Árið 2018 fékk hann hann nafnið Ágústa II EA 102 en hefur frá árinu 2019 Ari Óskar ÍS 127 með heimahöfn á Suðureyri.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution