Hjördís GK 32

570. Hjördís GK 32 ex Hjördís GK 294. Ljósmynd Vigfús Markússon.

Hjördís GK 32 var smíðuð í skipasmíðastöð Bárðar G. Tómassonar á Ísafirði árið 1939 og var upphaflega ÍS 70.

Báturinn, sem var 14 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Njörð hf. á Ísafirði sem átti hann til ársins 1955 en þá var hann seldur norður á Þórshöfn á Langanesi.

Þar fékk Hjördís einkennisstafina ÞH 205. Á Þórshöfn var hún til ársins 1970 en var þá seld suður í Sandgerði og varð GK 294. Ári síðar var númerinu breytt í 32 en einkennisstafirnir áfram GK.

Árið 1989 var báturinn kominn me heimahöfn í Keflavík og einkennsstafina KE 133.

Hjördís KE 133 sökk út af Stafnesi í marsmánuði 1990, mannbjörg varð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd