Sighvatur GK 57

975. Sighvatur GK 57 ex Bjartur. Ljósmynd Hafþór Hreðarsson.

Línubáturinn Sighvatur GK 57 kemur hér að bryggju á Húsavík í ágústmánuði árið 2004.

Hann var einn 18 báta sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í Boizenburg á árunum 1964-1967 og hét upphaflega Bjartur NK 121.

Síðar bar báturinn nöfnin Grímseyingur GK 606, Víkurberg GK 1 og aftur Bjartur áður en Vísir keypti hann árið 1982 og gaf honum nafnið Sighvatur GK 57.

Sighvatur fór til Belgíu í niðurrif í október 2019.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd