Sólrún EA 151

1851. Sólrún EA 151 ex Nunni EA 87. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015.

Sólrún EA 151 er hér við bryggju á Árskógssandi vorið 2015 en þetta nafn bar báturinn árin 2014 til 2017.

Báturinn hét upphaflega Friðgeir Björgvinsson RE 400 og var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ og hafði smíðanúmer 35 hjá stöðinni.

Báturinn, sem smíðaður var fyrir Helga Friðgeirsson í Reykjavík, var afhentur frá skipasmíðastöðinni 18. desember 1987. Hann var sérstaklega útbúinn til línuveiða með Mustad línuvélasamstæðu eins og segir í 10. tbl. Ægis árið 1988.

Friðgeir Björgvinsson RE 400, sem var yfirbyggður og var þá nýlunda á svo litlum bát, var 20 brl. að stærð. Hann var 13,42 metrar að lengd og 4,01 metrar á breidd. Aðalvélin var 182 kw. Ford Mermaid.

Báturinn var lengdur í 14,95 metra árið 1997 en þá hét hann Arnar SH 157. Við það varð hann 22 brl. að stærð.

Árið 2001 var sett ný vél í bátinn, 355 hestafla/261 kw. Deutz.

Síðar hét báturinn Arnar II SH 457, Bjarni Svein SH 103, Kristín Finnbogadóttir BA 95 og Nunni EA 87 áður en hann fékk nafnið Sólrún EA 151.

Í ársbyrjun 2018 fékk báturinn nafnið Sól EA 751 og um sumarið varð Sól orðin ÍS 330 eftir að báturinn hafði verið seldur til Suðureyrar, mikið skemmdur eftir eldsvoða sem varð um borð í bátnum við bryggju á Árskógssandi 12. nóvember 2017.

Hann hefur síðan legið við bryggju á Suðureyri og á myndunum hér að neðan sem teknar voru í sumar liggur hann við Brjótinn.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd