Gulltoppur ÁR 321

1414. Gulltoppur ÁR 321 ex Aðalbjörg II RE 236. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Hér er Gulltoppur ÁR 321 á toginu en hann hét upphaflega Vöttur SU 3 smíðaður í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1975.

Vöttur SU 3 hét síðar Vinur EA 80, Aðalbjörg II RE 236, Gulltoppur ÁR 321, Haförn ÞH 26, og Ási ÞH 3.

Árið 2017 fær hann nafnið Áskell Egilsson eftir að hafa verið gerður upp til siglinga með ferðamenn. Eigandi er Halldór Áskelsson ehf. á Akureyri.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd