Skarðsvík AK 205

1416. Skarðsvík AK 205 ex Skarðsvík SH 205. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skarðsvík AK 205 liggur hér við bryggju á Akureyri og það sennilega haustið 1990. Skarðsvík var upphaflega SH 205 og var smíðuð árið 1975 hjá Baatservice Verft A/S í Mandal í Noregi, hún hafði smíðanúmer 620. Hún var fjórða og jafnframt síðasta stálfiskiskipið í … Halda áfram að lesa Skarðsvík AK 205 →

Sigurjón Arnlaugsson HF 210

167. Sigurjón Arnlaugsson HF 210 ex Hafnarnes RE 300. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurjón Arnlaugsson HF 210 liggur hér við bryggju í Keflavík eitt haustið, sennilega 1985 eða þar um bil. Báturinn hét upphaflega Pétur Sigurðsson RE 331 var smíðaður í Noregi árið 1960 og kom til landsins þá um sumarið. Eigandi Sigurður Pétursson í Reykjavík … Halda áfram að lesa Sigurjón Arnlaugsson HF 210 →

Sæþór EA 101

1318. Sæþór EA 101. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér eru kallarnir á Sæþóri EA 101 frá Árskógssandi að draga netin um árið, sennilega um eða upp úr 1980. Sæþór, sem var 45 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Snorra Snorrason á Dalvík í Bátalóni hf. í Hafnarfiðri árið 1973. Árið 1978 var Sæþór seldur á Árskógssand … Halda áfram að lesa Sæþór EA 101 →

Vestmannaey kom og fór

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Jón Steinar tók þessa myndasyrpu af Vestmannaey VE 54 um hádegisbil í dag er hún kom til löndunar í Grindavík. Hún hélt síðan aftur á miðin að lokinni löndun. 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2026. Með því að smella á myndirnar er hægt … Halda áfram að lesa Vestmannaey kom og fór →