
Hér eru kallarnir á Sæþóri EA 101 frá Árskógssandi að draga netin um árið, sennilega um eða upp úr 1980.
Sæþór, sem var 45 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Snorra Snorrason á Dalvík í Bátalóni hf. í Hafnarfiðri árið 1973.
Árið 1978 var Sæþór seldur á Árskógssand þar sem hann hélt nafni sínu og númeri. Þaðan var báturinn gerður út til ársins 1986 er hann var seldur aftur til Dalvíkur þar sem hann fékk nafnið Bjarmi EA 13.
Frá Dalvík fór báturinn aftur árið 1989 og hefur síðan borið nöfnin Bjarmi HU13, Bjarmi ÍS 326, Bjarmi BA 326, Bjarmi BA 327, Súgfirðingur ÍS 16, Benjamín Guðmundsson SH 208, Svanur KE 77 og Onni HU 36 en það nafn ber báturinn í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution