Norwegian Star á Eyjafirði

IMO 9195157. Norwegian Star. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Skemmtiferðaskipið Norwegian Star lætur hér úr höfn á Akureyri síðdegis í gær. Skipið var smíðað í Þýskalandi árið 2001 og siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í Nassau. Norwegian Star er 91,740 GT að stærð, lengd skipsins er 294,15 metrar og breiddin er 32,8 metrar. Með því … Halda áfram að lesa Norwegian Star á Eyjafirði

Hafborg á veiðum

2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Jón Steinar náði í gær þessum myndum af Hafborginni EA 152 þar sem hún var á dragnótaveiðum á utanverðum Eyjafirði. Hafborg var smíðuð 2017 í Hvide Sande í Danmörku samkvæmt skráningu. Skrokkurinn var þó smíðaður í Szczecin í Póllandi og dreginn til Danmerkur hvar smíðin var … Halda áfram að lesa Hafborg á veiðum

Bergey VE 544

1478. Bergey VE 544 ex Lárus Sveinsson SH 126. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Skuttogarinn Bergey VE 544 hét upphaflega Lárus Sveinsson SH 126 á íslenskri skipaskrá en hann var keyptur notaður til landsins árið 1978. Hann hét áður President Arthur Brien og var keyptur frá Frakklandi en hann var smíðaður þar í landi árið 1974. Það … Halda áfram að lesa Bergey VE 544