Skagfirðingur SK 4

1285. Skagfirðingur SK 4 ex Bergvík KE 22. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Skagfirðingur SK 4 hét upphaflega Júlíus Geirmundsson ÍS 270 og var smíðaður í Flekkefjord í Noregi fyrir Gunnvöru hf. á Ísafirði.

Hann kom til heimahafnar á Ísafirði þann 5. desember 1972 og var fyrsti skuttogari Ísfirðinga. Togarinn var gerður þaðan út til ársins 1979 er nýr og stærri Júlíus Geirmundsson ÍS 270 leysti hann af hólmi.

Þá fékk hann nafnið Bergvík KE 22 sem hann bar til ársins 1989 er hann fékk nafnið Skagfirðingur SK 4.

Skagfirðingur SK 4 var seldur úr landi árið 1992 og var þá SK 400.

Haukur Sigtryggur sendi miða:

1285….Júlíus Geirmundsson ÍS 270… TF-LK.

Skipasmíðastöð: Flekkefjord Slipp & Mask. Fabr. A/S. Norge. 1972.
1974 = Brúttó: 407. U-þilfari: 276. Nettó: 173.
Lengd: 46,56. Breidd: 9,52. Dýpt: 5,15.

Smíðanúmer 109.
Kom nýr til Ísafjarðar 05.12.1972.

Mótor 1972 Wichmann 1287 kw. 1750 hö.

Júlíus Geirmundsson ÍS 270. Útg: Gunnvör h.f. Ísafirði. (1972 – 1979).
Seldur til Noregs 16.05.1979.
Seldur til Íslands 1979.

Bergvík KE 22. Útg: Hraðfrystihús Keflavíkur h.f. Keflavík. (1979 – 1989).
Skagfirðingur SK 4. Útg: Skagfirðingur h.f. Sauðárkróki. (1989 – 1992).
Skagfirðingur SK 400. Útg: Skagfirðingur h.f. Sauðárkróki. (1992).

Skagfirðingur SK 400. Útg: Ögurvík h.f. Reykjavík. (1992).
Seldur úr landi – tekinn af skrá 22.09.1992.

Skagfirðingur. Útg: Flekkefjord Slipp & Mask. Fabr. A/S. (1992 – 1997).
Hornsund MN-8040. Útg: ? Murmansk. Rússlandi. (1997 – 2002).
Hornsund GDY 153. Útg: ? Póllandi. (2002 – 2010).

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd