Haukur GK 25

2107. Haukur GK 25 ex Snoddið FD 532. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Skuttogarinn Haukur GK 25 liggur hér við bryggju í Sandgerði um árið en Valbjörn hf. í Sandgerði keypti hann notaðan frá Færeyjum árið 1991.

Haukur, sem kom í stað minni og eldri togara sem bar einnig nafnið Haukur, hét áður Snoddið FD 532 og var smíðaður fyrir Færeyinga árið 1984.

Skipið var smíðað hjá Langsten Slip & Baatbyggeri A/S, Tomrefjord í Noregi.

Haukur var seldur aftur til Færeyja árið 2000.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd