
Hér gefur að líta Sólfell EA 640 frá Hrísey þar sem báturinn liggur utan á nýsmíði í Slippnum sem síðar fékk nafnið Bylgja VE 75.
Smíði Bylgjunnar lauk árið 1992 og myndin tekin það ár.
Sólfell EA 640 hét áður Ólafur Magnússon EA 250 en snemma árs 1983, keypti Njörður h/f í Hrísey bátinn en fyrirtækið var í meirhlutaeign KEA.
Báturinn fékk nafnið Sólfell EA 640 sem hann bar til ársins 1992 en í nóvember það ár var hann seldur til Noregs og tekinn af skipaskrá.
Um Ólaf Magnússon EA 250 má lesa hér.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution