
Haraldur Böðvarsson AK 12 var keyptur til Íslands árið 1975 og kom til heimahafnar á Akranesi þann 30. júlí það ár
Togarinn, sem áður bar nafnið Båtsfjord og var 299 brl. að stærð, var keyptur frá Noregi en hann var smíðaður hjá Storviks Mek. Verksted A/S í Kristiansund.
Hann hafði verið afhentur fyrri eigendum í apríl á þessu sama ári, þ.e.a.s 1975.
Haraldur Böðvarsson AK 12 endaði sem fóðurprammi fyrir fiskeldi á Berufirði og bar nafnið Stapaey120 frá árinu 2005.
Stapaey fór í pottinn árið 2018.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution