Svanborg SH 404

2344. Svanborg SH 404. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Svanborg SH 404 frá Ólafsvík liggur hér við bryggju í Hafnarfirði þar sem hún var smíðuð hjá Véla- og skipaþjónustunni Ósey hf. árið 1999.

Skrokkur bátsins var smíðaður af Crist Spolka í Póllandi en báturinn var 42 BT að stærð.

Báturinn, sem smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Feng ehf. Ólafsvík, fórst undir Svörtuloftum á Snæfellsnesi 8. desember 2001.

Á bátnum var fjögurra manna áhöfn og með honum fórust þrír þeirra en einum var bjargað af þyrlu varnarliðsins.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd