Egill Halldórsson SH 2

1126. Egill Halldórsson SH 2 ex Þorsteinn SH 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Ólafsvíkurbáturinn Egill Halldórsson SH 2 liggur hér við bryggju í Hafnarfirði um árið en hann hét upphaflega Skálavík SU 500 og var smíðaður árið 1970 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf.

Báturinn hefur borið ýmis nöfn í gegnum tíðina og tekið talsverðu breytingum og mælist nú 65 BT að stærð.

Frá árinu 2008 hefur hann borið nafnið Harpa HU 4 og er gerður út af BBH útgerð ehf. frá Hvammstanga.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd