Sleipnir VE 83

951. Sleipnir VE 83 ex Hafnarvík ÁR 113. LJósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sleipnir VE 83 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum en hann hét upphaflega Friðrik Sigurðsson ÁR 17 og var smíðað í Danmörku árið 1963. Haukur Sigtryggur sendi miða: 0951….Friðrik Sigurðsson ÁR 17… TF-IP. Skipasmíðastöð: ? Marstal. Danmörk. 1963. 1970 = Brúttó: 77. U-þilfari: 66. … Halda áfram að lesa Sleipnir VE 83 →

Húsvíkingur ÞH 1

2216. Húsvíkingur ÞH 1 ex Pétur Jónsson RE 69. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1997. Hér liggur Húsvíkingur ÞH 1 við Norðurgarðinn í Húsavíkurhöfn og var þetta í fyrsta skiptið af örfáum sem hann kom í heimahöfn. Húsvíkingur hét upphaflega Pétur Jónsson RE 69 og var smíðaður árið 1994 fyrir Pétur Stefánsson skipstjóra og útgerðarmann. Smíðin fór … Halda áfram að lesa Húsvíkingur ÞH 1 →

Vestri II í slipp í Reykjavík

182. Vestri II BA 630 ex Vestri BA 63. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Vestri II BA 630 er í slipp í Reykjavík þessa dagana en hann hefur ekki verið í útgerð frá því nýi Vestri leysti hann af hólmi árið 2022. Báturinn hét upphaflega Sigurður Jónsson SU 150 frá Breiðdalsvík og var smíðaður í Noregi árið 1963. … Halda áfram að lesa Vestri II í slipp í Reykjavík →

Fiskkaup kaupir Aðalbjörgu RE 5

1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Eins og komið hefur komið fram í fréttum hefur Fiskkaup hf. keypt útgerðarfélagið Aðalbjörgu RE ásamt samnefndu skipi og aflaheimildum. Aðalbjörg RE 5 var smíðuð hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1987 og lengd árið 1995. Báturinn er eftir það 21,99 metrar að lengd og mælist 59 brl./68 BT að … Halda áfram að lesa Fiskkaup kaupir Aðalbjörgu RE 5 →

Vísisskipin landa víða

Vísisskipin í heimahöfn. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar í dag að Vísisskipin hafi landað allvíða að undanförnu en aflabrögð hafa verið þokkaleg. Hér á eftir verður greint frá aflabrögðum og löndunum skipanna síðustu dagana að krókaaflamarksbátnum Fjölni GK undanskildum. Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði á Grundarfirði sl. sunnudag. Afli skipsins … Halda áfram að lesa Vísisskipin landa víða →

Dongeborg kom í dag

IMO:9163697. Dongeborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hann var hægur og þoka við Skjálfanda í dag þegar hollenska flutningaskipið Dongeborg kom til Húsavíkur eftir siglingu frá El Ferrol á norður Spáni. Farmur skipsins er hráefni til kísilvers PCC á Bakka en Dongeborg er fyrsta skip ársins með hráefni til PCC. Dongeborg, sem er 6,205 GT að … Halda áfram að lesa Dongeborg kom í dag →

Höfðavík AK 200

1508. Höfðavík AK 200 ex Óskar Magnússon AK 177. ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Höfðavík AK 200 hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177 og var smíðað sem nóta- og togveiðiskip í Slippstöðinni á Akureyri árið 1978. Árið 1984 fékk skipið nafnið Höfðavík AK 200 sem það bar þar til Langanes ehf. á Húsavík keypti það 1996 og … Halda áfram að lesa Höfðavík AK 200 →

Vörðunes GK 45

951. Vörðunes GK 45 ex Friðrik SIgurðsson ÁR 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vörðunes GK 45 hét upphaflega Friðrik Sigurðsson ÁR 17 og var smíðað í Danmörku árið 1963. Haukur Sigtryggur sendi miða: 0951....Friðrik Sigurðsson ÁR 17... TF-IP. Skipasmíðastöð: ? Marstal. Danmörk. 1963. 1970 = Brúttó: 77. U-þilfari: 66. Nettó: 22. Lengd: 23,23. Breidd: 5,85. Dýpt: … Halda áfram að lesa Vörðunes GK 45 →