Ný Clepopatra 36 til Noregs

Varde VL-94-AV. Ljósmynd Trefjar 2024. Útgerðarfélagið Tøkje Båt AS í Austevoll í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það er Ole Tøkje sem stendur að útgerðinni en hann verður jafnframt skipstjóri á bátnum. Nýj báturinn heitir Varde og er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 … Halda áfram að lesa Ný Clepopatra 36 til Noregs →

Áskell að draga netin

298. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1982. Áskell ÞH 48 frá Grenivík er hér að draga netin á vetrarvertíð árið 1982. Áskell ÞH 48 var smíðaður fyrir Gjögur h/f á Grenivík í Danmörku 1959, ári eftir að fyrirtækið missti Von TH 5. Von strandaði við Reykjanes árið 1958, mannbjörg varð en báturinn eyðilagðist. Áskell … Halda áfram að lesa Áskell að draga netin →

Heiðrún ÍS 4

1506. Heiðrún ÍS 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Heiðrún ÍS liggur hér í Reykjavíkurhöfn um árið og aftan við hana má sjá Bjarma frá Tálknafirði. Heiðrún, sem var 294 brl. að stærð, var smíðuð árið 1978 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar h/f á Ísafirði fyrir Völustein h/f í Bolungarvík. Togarinn var búinn 1450 hestafla Alpha aðalvél. … Halda áfram að lesa Heiðrún ÍS 4 →

Bátar við bryggju á Skagaströnd

Bátar við bryggju á Skagaströnd. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér gefur að líta nokkra báta við bryggju á Skagaströnd um árið, sennilega 1989. Þarna má þekkja Nökkva HU 62, Helgu Björgu HU 7 og Bjarna Helgason HU 109 auk Arnarborgarinnar sem var HU 11. Allir smíðaðir á Íslandi nema sá síðastnefndi. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Skagaströnd →