Gerpir NK 111 í slipp á Akureyri

1453. Gerpir NK 111 ex Jón Björn NK 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Gerpir NK 111 er hér í slipp á Akureyri en báturinn var seldur til Húsavíkur á dögunum. Það segir frá sölunni á vef Austurfrétta en seljandi er SÚN í Neskaupstað sem eignaðist bátinn árið 2003. Hann var í fyrstu nýttur til að … Halda áfram að lesa Gerpir NK 111 í slipp á Akureyri →

Hebridean Sky

IMO 8802882. Hebridean Sky ex Sea Explorer I. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Hebridean Sky kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagðist að Þvergarðinum. Skipið, sem er í eigu Noble Caledonia, var smíðað árið 1991 í skipasmíðastöðinni Nuovi Cantieri Apuania á Ítalíu. Það er svokallað leiðangursskip og tekur 120 farþega. Hebridean Sky er 4,200 … Halda áfram að lesa Hebridean Sky →

Sigurvon EA

7343.Sigurvon EA ex Kópur BA 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Sigurvon EA hét upphaflega Særoði ST 51 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1992. Heimahöfn Særoðans var Hólmavík en árið 1993 fékk hann nafnið Ösp ST 22. Árið 2005 fékk báturinn nafnið Kópur BA 152 og heimahöfn hans Flatey á Breiðafirði. Samkvæmt vefnum … Halda áfram að lesa Sigurvon EA →

Skemmtisigling Grindvíkinga

Skemmtisigling Grindvíkinga á Sjómannadaginn. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Hefð er fyrir því í Grindavík að Sjómannafélag Grindavíkur og útgerðarmenn þar í bæ bjóði gestum og gangandi í skemmtisiglingu í tilefni af sjómannadeginum. Í ár bauðst gestum að sigla með Vísisbátunum Páli Jónssyni GK 7 og Sighvati GK 57 og samkvæmt ljósmyndaranum viðraði vel á mannskapinn … Halda áfram að lesa Skemmtisigling Grindvíkinga →

Sextugur Húni II í skemmtisiglingu

108. Húni II EA 740 ex Húni II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér kemur Húni II EA 740 úr einni af skemmtisiglingum Sjómannadagsins hann fór í þær nokkrar í dag. Sextugur unglingurinn en í þeirri fyrstu fór hann fyrir flota smábáta og hafnsögbátarnir voru með í för. Síðan fór hann amk. í tvígang í siglingu … Halda áfram að lesa Sextugur Húni II í skemmtisiglingu →

Til hamingju með daginn sjómenn

2450. Hrönn ÞH 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Með þessari mynd sem sýnir Hrönn ÞH 36 í skemmtisiglingu á Skjálfanda árið 2001 sendi ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni Sjómannadagsins. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Til hamingju með daginn sjómenn →

Sextugur Knörrinn kemur að

306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Körrinn er byrjaður siglingar með ferðamenn þetta árið en myndin var tekin í dag þegar hann kom úr hvalaskoðunarferð á Skjálfanda. Þann 9. mars sl. voru 60 ár síðan báturinn var sjósettur hjá Slippstöðinni á Akureyri en hann hét upphaflega Auðunn EA 157. Hann var smíðaður … Halda áfram að lesa Sextugur Knörrinn kemur að →

Seaborn Ovation á Skjálfanda

IMO 9764958. Seaborn Ovation . Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Skemmtiferðaskipið Seaburn Ovation kom snemma í morgun inn á Skjálfanda og lagðist við ankeri skammt undan Húsavík þangað sem farþegar skipsins voru ferjaðir með skipsbátum. Skipið, sem var smíðað árið 2018 í Genóa á Ítalíu, hélt síðan áfram ferð sinni síðdegis. Seaborn Ovation er 41,865 GT … Halda áfram að lesa Seaborn Ovation á Skjálfanda →