
Mardís ÞH 151 er hér á ferðinni um miðjan júní árið 2003 en þá var eigandi bátsins Uggi fiskverkun ehf. á Húsavík.
Það hafa áður birst myndir af bátnum hér á síðunni þar sem vel er greint frá sögu hans en Árni Sigurðsson á Húsavík smíðaði bátinn ásamt fleirum. Skrokkur bátsins var smíðaður á Bátaverkstæði Birgirs Þórhallssonar á Akureyri.
Hér má lesa nánar um Mardísi ÞH 151.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution