Kaldbakur EA 1

2981. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Kaldbakur EA 1, togari Útgerðarfélags Akureyringa, kom inn til löndunar í Hafnarfirði í gær og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Kaldbakur var  fyrstur í röðinni af fjór­um syst­ur­skip­um sem smíðuð voru hjá Cem­re-skipa­smíðastöðinni í Tyrklandi. Hin eru Björgúlfur EA 312, Drangey SK 2 og Björg EA 7. … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1

Jón Ásbjörnsson á landleið

2755. Jón Ásbjörnsson RE 777 ex Ragnar SF 550. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Jón Steinar tók þessar myndir í morgun af Jóni Ábjörnssyni RE 777 sullast á móti austanbárunni á landleið til Grindavíkur í morgun. Aflinn hjá honum var um 7-8 tonn eftir tæpar tvær lagnir. Jón Ásbjörnsson RE 777 var smíðaður í Bátagerðinni Samtak … Halda áfram að lesa Jón Ásbjörnsson á landleið

Ásgeir ÞH 98

5481. Ásgeir ÞH 98. Ljósmynd úr safni Viðars Eiríkssonar. Ásgeir ÞH 98 var smíðaður af Svavari Þorsteinsyni skipasmið á Akureyri árið 1961. Hann smíðaði bátinn fyrir Þórð Ásgeirsson og Magnús Andrésson á Húsavík en Ásgeir var tæplega 5 brl. að stærð. Doddi og Maggi áttu bátinn í tíu ár en þá seldu þeir hann Hreiðari … Halda áfram að lesa Ásgeir ÞH 98

Moby Dick

46. Moby Dick ex Fjörunes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kemur hér úr ferð út á Skjálfandaflóa en það var Arnar Sigurðsson sem gerðu bátinn út á sínum tíma. Upphaflega Djúpbáturinn Fargranes sem smíðaður var í Florø í Noregi árið 1963 og mældist þá 134 brl. að stærð. Moby Dick kom til Húsavíkur sumarið … Halda áfram að lesa Moby Dick

V/S Freyja og Gummi St.

3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Varðskipið Freyja kom til hafnar á Húsavík nú undir kveld og voru þessar myndir teknar við það tækifæri. Varðskipið Freyja er 86 metra langt og 20 metra breitt, smíðað árið 2010 og var keypt til Íslands árið 2021. Bátsmaðurinn á Freyju, Guðmundur St. Valdimarsson var á … Halda áfram að lesa V/S Freyja og Gummi St.

Bátar í slipp í Stykkishólmi

151. María Júlía BA 151, 1399. Haukaberg SH 20. 260. Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þarna standa saman í slippnum í Stykkishólmi María Júlía BA 151, Haukaberg SH 20 og Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Það er ekki útilokað, í náinni framtíð, að maður nái að mynda María Júlíu og Sveinbjörn, sem nú heitir … Halda áfram að lesa Bátar í slipp í Stykkishólmi