Keilir og Lagarfoss

2946. Keilir. - IMO 9641314. Lagarfoss Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér liggja við olíubryggjuna í Örfirisey olíuflutningaskipið Keilir og gámaflutningaskipið Lagarfoss. Myndin var tekin á Sumardaginn fyrsta. Keilir er í eigu Olíudreifingar og var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Lagarfoss sem Eimskip gerir út var smíðaður árið 2014 og er 10.106 GT að stærð en Keilir … Halda áfram að lesa Keilir og Lagarfoss →

Bjargfugl RE 55

6474. Bjargfugl RE 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Grásleppubáturinn Bjargfugl RE 55 kemur hér til hafnar í Reykjavík en hann er gerður út af samnefndu fyrirtæki. Plastgerðin sf. í Kópavogi smíðaði bátinn fyrir Kjartan Kjartansson árið 1982 og hefur hann alla tíð borið sama nafn. Báturinn var lengdur árið 1996 og mælist 8 brl. að … Halda áfram að lesa Bjargfugl RE 55 →

Glófaxi VE 300

244. Glófaxi VE 300 ex Gullberg VE 292. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Glófaxi VE 300 hét upphaflega Gullberg NS 12 og var smíðaður árið 1964 hjá Skipaviðgerðum hf. í Vestmannaeyjum. Báturinn var smíðaður fyrir Gullberg hf. á Seyðisfirði og vae 162 brl. að stærð. Búinn 625 hestafla Krohout aðalvél. Árið 1971 keypti Ufsaberg hf. í Vestmannaeyjum … Halda áfram að lesa Glófaxi VE 300 →