264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér siglir Þórður Jónasson EA 350 á Akureyrarpolli um árið en Akureyri var lengstum hans heimahöfn. Þórður Jónasson, sem smíðaður var í Noregi og kom til Akureyrar í júníbyrjun árið 1964, var upphaflega RE 350. Hann var smíðaður fyrir Valtý Þorsteinsson útgerðarmann … Halda áfram að lesa Þórður Jónasson EA 350
Month: janúar 2023
Tveir danskir
3030. Vestri BA 63 - 260. Garðar mætast á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Á þessari mynd sem tekin var í ágústmánuði í fyrra mætast tvær fleytur í mynni Húsavíkurhafnar. Og þær eiga amk. eitt sameiginlegt, það er smíðaland þeirra sem er Danmörk. Hvalaskoðunarbáturinn Garðar, sem þarna er á útleið, hét upphaflega Sveinbjörn Jakobsson SH … Halda áfram að lesa Tveir danskir
Gleðilegt nýtt ár-Happy new year-Feliz año nuevo
2992. Baldvin Njálsson GK 400 í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Magnús Jónsson. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Gleðilegt nýtt ár-Happy new year-Feliz año nuevo


