
Ólafsvíkurbáturinn Egill SH 195 er hér upp í Slippnum á Akureyri á dögunum en hann hét upphaflega Fylkir NK 102 og var smíðuð í Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1972 fyrir Drift hf. í Neskaupstað.
Báturinn, sem upphaflega var 92 brl. að stærð var seldur til Hafnar í Hornafirði árið 1978 og fékk þá nafnið Lyngey SF 61.
Frá Höfn var báturinn gerður út til ársins 1989 er hann var seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Tungufell SH 31. Vorið 1992 var Tungufellið selt innan bæjar í Ólafsvík og fékk nafnið Egill SH 195.
Egill SH 195 hefur verið lengdur yfirbyggður og skipt um brú og mælist hann 99 brl. að stærð í dag. Eigandi Litlalón ehf. í Ólafsvík en báturinn hefur verið á Akureyri í vélaskiptum.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Sæll Hafþór.Fylkir var fyrstur í röðini af stóru bátunum sem Byggðir voru hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar,hann var byggður undir berum himni.
Líkar viðLíkar við
Gaman að heyra Orri, bestu kveðjur austur
Líkar viðLíkar við