
Júlíus Havsteen ÞH 1 var fyrsti skuttogari húsvíkinga og var smíðaður hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi.
Hann kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Húsavík 24. október árið 1976.
Á efstu myndinni er Sigþór ÞH 100 fyrir aftan hann og utan á bryggjunni er Aron ÞH 105.
Togarinn, sem var tæplega 300 brl. að stærð, hét lengst af þessu nafni en þegar nýr Júlíus Havsteen ÞH 1 var keyptur frá Grænlandi var þessi seldur og fékk nafnið Þórunn Havsteen ÞH 40.
Seldur til Noregs 1999 þar sem hann fékk nafnið Bergstrål og síðar Solheimfisk. Seldur til Möltu þar sem hann fékk nafnið Sunfish og heitr svo enn.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution