Ný Lilja ÞH 21

6969. Lilja ÞH 21 ex Manni NS 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarrsson 2022.

Strandveiðibáturinn Lilja ÞH 21 kom til Húsavíkur í gærkveldi eftir siglingu frá Akureyri. Bjarni Eyjólfsson keypti bátinn frá Vopnafirði í fyrra en þar bar hann nafnið Manni NS 50.

Lilja er af Sómagerð, smíðuð hjá Bátasmiðju Guðmundar hf. í Hafnarfirði árið 1987.

Báturinn hét upphaflega Rita NS 13 en árið 2009 fékk hann nafnið Manni NS 50.

Það var svo í lok ágústmánaðar 2021 sem hann fékk nafnið Lilja ÞH 21.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd