
Guðrún GK 47 komst í fréttir í morgun þegar báturinn strandaði við Rifstanga á Melrakkasléttu.
Björgunarskipinu Gunnbjörg frá Raufarhöfn dró hann á flot og var komið með hann til Raufarhafnar að ganga hálf ellefu í morgun.
Guðrún GK 47, sem er í eigu Skarfakletts ehf., hét upphaflega Dúddi Gísla GK 48. Síðar Ólafur HF 200, Pálína Ágústsdóttir GK 1 og GK 54. Því næst Arney BA 158 og loks Guðrún GK 47.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution