
Flutningaskipið Wilson Caen hefur legið við stjóra fyrir utan Húsavík síðan í gærmorgun.
Þar hafa skipverjar beðið eftir því að röðin komi að þeim við Bökugarðinn en skipið verður losað á morgun.
Skipið, sem var smíðað árið 1998 og mælist 2,999 GT að stærð, er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Lengd þess er 99,90 metrar og breiddin er 12,80 metrar.
Það siglir undir fána Barbados og er með heimahöfn í Bridgetown.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution