
Garðar GK 141 kemur hér til hafnar í Grindavík um árið en myndina tók Ágúst Guðmundsson.
Ég skrifaði um bátinn á gömlu síðunni en endurbirti það hér:
Sigrún AK 71 var smíðuð á Akranesi 1962 og mældist þá 139 brl. að stærð. Hún var í eigu Sigurðar Hallbjarnarsonar hf. á Akranesi sem seldi bátinn 1965 norður á Höfðakaupstað sem í dag heitir Skagaströnd.
Kaupandi var Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar hf. og fékk báturinn nafnið Helga Björg HU 7. Báturinn var endurmældur árið 1966 og mældist 114 brl. eftir það. Hann var aftur endurmældur 1971, við það varð hann 101 brl. og ári síðar var hann seldur Útveri hf. í Keflavík.
Þá fékk hann nafnið Hólmsberg KE 16. 1977 er hann aftur seldur, nú Flös hf. í Garði sem nefnir hann Þórð Sigurðsson og er hann enn með KE 16. Lárus Guðmundsson og Brynjar Ólafsson í Grundarfirði kaupa bátinn 1980 og nú heitir hann Framfari SH 42.
Seldur 1981 Stöð hf. í Grundarfirði, sama nafn og númer. Sama ár er sett í hann ný 500 hestafla aðalvél af gerðinni Greena en upphaflega var 525 hestafla MWM aðalvél í bátnum.
1982 er hann seldur til Reykjavíkur. Kaupendur eru Óli Guðmundsson og Hvalfell hf. og fær hann nafnið Jón Halldórsson RE 2. 1984 er hann enn og aftur seldur, nú Gesti Ragnarssyni í Grindavík sem nefnir hann Garðar GK 141. 1984 skiptir báturinn enn og aftur um nafn og númer þegar Hraðfrystihús Þórkötlustaða hf. kaupir hann og hann verður Þorbjörn II GK 540.
Þessar heimildir eru úr ritverkinu Íslensk skip eftir Jón Björnsson og ná ekki lengra fram en til ársins 1988. Ég er því ekki með öruggar heimildir fyrir því hvað varð um bátinn eftir 1988 en minnir þó að Þorbjarnarnafnið hafi verið hans síðasta.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution