2329. Sveinn Benediktsson SU 77 ex Talbor. Ljósmynd Pétur Helgi Pétirsson. Sveinn Benediktsson SU 77 hét áður Talbor og var keyptur til landsins af SR Mjöl hf. árið 1999. Skipið var smíðað í Noregi árið 1990 og er 56 metra langt og 11 metra breitt, alls 1.230 brúttólestir. Hét upphaflega Torson. Hét síðan Guðmundur Ólafur … Halda áfram að lesa Sveinn Benediktsson SU 77
Gadus Njord N-125-VV
Gadus Njord N-125-VV. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2017. Hér koma tvær myndir af norska skuttogaranum Gadus Njord sem Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók. Það er útgerðin Havfisk í Noregi sem á Gadus Njord en á árunum 2013 og 2014 fékk fyrirtækið afhenta þrjá nýja togara eftir sömu teikningu, Gadus Poseidon, Gadus Njord og Gadus Neptun. … Halda áfram að lesa Gadus Njord N-125-VV
Sigurvin GK 43
1943. Sigurvin GK 61 ex Stakkavík GK 61. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurvin GK 61 kemur hér að landi í Grindavík um árið en báturinn hét upphaflega Guðlaug Lárusdóttir RE 310. Guðlaug Lárusdóttir RE 310 var smíðuð árið 1988 í Aqua Star bátasmiðjunni í Guernesey á Englandi. Árið 1995 er báturinn kominn í eigu Stakkavíkur í … Halda áfram að lesa Sigurvin GK 43
Héðinn Magnússon ÞH 17
1354. Héðinn Magnússon ÞH 17 ex Viðar ÞH 17. Ljósmynd Alfons Finnsson. Héðinn Magnússon ÞH 17 hét upphaflega Múli ÓF 5 og var smíðaður hjá Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri og afhentur 1974. Múli átti síðan eftir að bera nöfnin Fiskanes NS, Faxavík GK, Harpa II GK, Skálavík SH, Guðbjörg Ósk VE, Guðbjörg Ósk … Halda áfram að lesa Héðinn Magnússon ÞH 17
Aron ÞH 105
2333. Aron ÞH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Aron ÞH á siglingu til 105 hafnar á Húsavík. Smíðaður í Strandby í Danmörku árið 1990. Knarraeyri ehf. á Húsavík keypti bátinn frá Fotø í Svíþjóð síðla árs 1998. Aron var skutlengdur ári síðar í Póllandi en útgerðarsaga hans á Íslandi varð ekki löng. Þann 30. september 2002 … Halda áfram að lesa Aron ÞH 105
Bára ÍS 364
1053. Bára ÍS 364 ex Bára SH 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bára ÍS 364, sem hér kemur að landi í Þorlákshöfn um árið, hét upphaflega Kristjón Jónsson SH 77 frá Ólafsvík. Síðar Kristbjörg ÞH 44 og Kristbjörg II ÞH 244. 1980 fékk báturinn nafnið Skálaberg ÞH 244 og þegar það var selt til Flateyrar fékk … Halda áfram að lesa Bára ÍS 364
Víkingur AK 100
Víkingur Ak 100. Ljósmynd Hilmar Örn Kárason 2016. Hér skemmtileg drónamynd af Víkingi AK 100 koma inn Vopnafjörðinn til löndunar Myndina tók Hilmar Örn Kárason skipverji á systurskipinu Venusi NS 150. Víkingur AK 100,sem er 81,19 metra langur og 17 metrar á breidd, var smíðaður í skipasmíðastöðinni Celiktrans Deniz Insaat Ltd í Tyrklandi og kom … Halda áfram að lesa Víkingur AK 100
Drangavík VE 80
2048. Drangavík VE 80 ex Drangavík VE 555. Ljósmynd Alfons Finnsson. Drangavík VE 80 sem sést hér á toginu hét upphaflega Æskan SF 140. Æskan var eitt fjögurra togskipa sem smíðu voru í Aveiro í Portúgal fyrir íslenskar útgerðir í upp úr 1990. Fyrst kom Haukafell SF 111 í júlí 1990 en var síðar selt … Halda áfram að lesa Drangavík VE 80
Pioner við Bökugarðinn
Pioner við Bökugarðinn í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Rússneska flutningaskipið Pioner kom til Húsavíkur snemma í morgun með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Pioner kom hingað fyrir tæpu ári og þá skrifaði ég: Skipið var smíðað 1997 og er með heimahöfn í Arkhangelsk. Lengd þess er 103 metrar og breiddin 16 metrar. Skráð 3893 GT … Halda áfram að lesa Pioner við Bökugarðinn
Frosti HF 320
6190. Frosti HF 320. Ljósmynd Alfons Finsson. Frosti HF 320, eða Sálin eins og Fonsi kallar hann, kemur hér að landi í Ólafsvík. Frosti HF 320 var smíðaður úr furu og eik af Eyjólfi Einarssyni skipasmíðameistara í Hafnarfirði árið 1981 fyrir Viðar Sæmundsson þar í bæ. Frosti er 9,35 m. að lengd, breiddin er 2,83 … Halda áfram að lesa Frosti HF 320









