Valdimar GK 195 í ólgusjó

2354. Valdimar GK 95 ex Vesturborg GK 195. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Línuskipið Valdimar Gk 195 kom til hafnar í Grindavík í dag um hádegisbil en það var suðaustan 12 metrar og haugasjór í honum með ölduhæð uppá 6,6m. þegar þetta var. Jón Steinar var á sínum stað og tók meðfylgjandi myndir en hann var … Halda áfram að lesa Valdimar GK 195 í ólgusjó →

Sigurður Jónsson SU 150 við bryggju á Breiðdalsvík

182. Sigurður Jónsson SU 150. Ljósmynd Sigurður Þorleifsson frá Karlsstöðum í Berufirði. Hér kemur mynd sem Sigurður Þorleifsson frá Karlsstöðum í Berufirði tók á síldarárunum af Sigurði Jónssyni SU 150 velhlöðnum við bryggju á Breiðdalsvík. Sigurður Jónsson SU 150 var smíðaður í Noregi 1963 og kom til heimahafnar í nóvember það ár. Þann 13 nóvember … Halda áfram að lesa Sigurður Jónsson SU 150 við bryggju á Breiðdalsvík →

Key West í Grindavík

Key West við Miðgarðinn í Grindavíkurhöfn. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Flutningaskipið Key West kom til Grindavíkur fyrir helgi með iðnaðarlýsi fyrir Lýsi hf. en lýsið er geymt í tönkum þeim sem sem áður tilheyrðu Fiskimjöli & Lýsi hf sem eyðilagðist í bruna árið 2005. Key West var smíðað árið 1992 og hét upphaflega Roland Essberger. … Halda áfram að lesa Key West í Grindavík →

Pálína Ágútsdóttir EA 85 í roki og rigningu

1674. Pálína Ágústsdóttir EA 85 ex Sóley SH 124. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Togbáturinn Pálína Ágústdóttir EA 85 kom til hafnar í Keflavík í dag en báturinn er á fiskistrolli. Það var rok og rigning en það hamlaði ekki því að Elvar Jósefsson fór og myndaði bátinn við komuna. 1674. Pálína Ágústsdóttir EA 85 ex … Halda áfram að lesa Pálína Ágútsdóttir EA 85 í roki og rigningu →

Slippurinn fullklárar vinnsludekk Kaldbaks og Björgúlfs

2891.Kaldbakur EA 1 og 2982. Björgúlfur EA 312 á veiðum í síðustu viku. Ljósmynd Guðmundur Rafn 2019. Fiskifréttrir greina frá því í nýjasta tölublaði sínu að samningar hafi verið undirritaðir milli Samherja og Slippsins Akureyri um ný vinnsludekk í ísfisktogaranna Kaldbak EA 1 og Björgúlf EA 312. Áætlað að Slippurinn klári uppsetningu á vinnsludekkinu í … Halda áfram að lesa Slippurinn fullklárar vinnsludekk Kaldbaks og Björgúlfs →

Wilson Calais kom til Húsavíkur með áburð

Wilson Calais ex Steffen Sibum. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Flutningaskipið Wilson Calais kom til Húsvíkur í gærkveldi þar sem það mum losa áburð handa þingeyskum bændum á Norðurgarðinum. Skipið er 100 metra langt og 13 metra breitt, mælist 2,994 GT að stærð. Það var smíðað árið 2001 og siglir undir fána Barbadoseyja, heimahöfnin Bridgetown. Með … Halda áfram að lesa Wilson Calais kom til Húsavíkur með áburð →

Saxhamar SH 50 á netaralli

1028. Saxhamar SH 50 ex Sjöfn EA 142. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Saxhamar SH 50 kemur hér til hafnar í Sandgerði en hann er þessa dagana á svokölluðu netaralli fyrir Hafró. Elvar Jósefsson tók þessa mynd um kvöldmatarleytið í gær en Saxhamar sinnir SV. svæðinu í netarallinu. Saxhamar sem Útnes ehf. á og gerir út … Halda áfram að lesa Saxhamar SH 50 á netaralli →