1585. Sturlaugur H Böðvarsson AK 10 ex Sigurfari II SH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Sturlaugur H Böðvarsson AK 105, áður AK 10, hefur fengið nafnið Mars RE 13 samkvæmt vef Fiskistofu. Morgunblaðið greinir frá því í dag að Útgerðarfélag Reykjavíkur hafi keypt togarann af HB Granda hf. í byrjun febrúar. Sturlaugur H fór sína … Halda áfram að lesa Sturlaugur H orðinn Mars RE 13
Snæfugl SU 20 á Breiðdalsvík
258. Snæfugl SU 20 við bryggju á Breiðdalsvík. Ljósmynd Sigurður Þorleifsson. Hér birtast þrjár myndir úr safni Sigurðar Þorleifssonar frá Karlsstöðum í Berufirði og sýna Snæfugl SU 20 við bryggju á Breiðdalsvík á síldarárunum. Snæfugl SU 20 var smíðaður árið 1964 í Florø í Noregi og kom til Reyðarfjarðar 6. mars það ár. 14. apríl … Halda áfram að lesa Snæfugl SU 20 á Breiðdalsvík
Sighvatur GK 57 á leið í róður
1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Það er dulúð yfir þessari flottu mynd sem Jón Steinar tók þegar Sighvatur GK 57 lagði upp í línuróður á dögunum. Rigningarsuddi sólarlagið gerir hana svo flotta og ekki skemmir skipið fyrir. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Sighvatur GK 57 á leið í róður
Gústi í Papey SF 88
1739. Gústi í Papey SF 88 ex Geir SH 187. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjubáturinn Gústi í Papey SF 88 kemur þarna siglandi inn Skjálfandann á sínum tíma. Sigrún ÍS 900 hét hann og var fyrst í eigu Theodórs Nordquist og Svavars Péturssonar og síðar Ásrúnar hf. á Ísafirði. Hann var smíðaður í Finnlandi 1979 en … Halda áfram að lesa Gústi í Papey SF 88
Gullfaxi GK 14 á endastöð
297. Gullfaxi GK 14 ex Eldhamar II GK 139. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Hér er Gullfaxi GK 14 kominn á endastöð í fjörunni í Grindavík þar sem hann var rifinn vorið 2008. Upphaflega Magnús Marteinsson NK 85 eins og kom fram hér á síðunni fyrir stuttu. Smíðaður 1956 fyrir Svein Magnússon útgerðarmann í Neskaupstað hjá … Halda áfram að lesa Gullfaxi GK 14 á endastöð
Sæbjörg EA 184 að veiðum við Kópasker
2047. Sæbjörg EA 184 ex Linni SH 303. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Grímseyjarbáturinn Sæbjörg EA 184 er á þorskanetum og rær þessa dagna frá Kópaskeri við Öxarfjörð. Og þar tók Gaukur Hjartarson þessa mynd þar sem kallarnir eru að leggja trossu í hafið. Sæbjörg EA 184 hét upphaflega Magnús Guðmundsson ÍS 97 frá Flateyri en … Halda áfram að lesa Sæbjörg EA 184 að veiðum við Kópasker
Vigri RE 71 að veiðum
2184. Vigri RE 71. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hér birtist frystistogarinn Vigri RE 71 en myndirnar sýna hann að veiðum á Heimsmeistarahrygg í Skerjadýpi sl. fimmtudag. Vigri RE 71 var smíðaður fyrir Ögurvík hf. í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1992. Togarinn, sem er 1.217 brl. að stærð, er 66.96 … Halda áfram að lesa Vigri RE 71 að veiðum
Nýi Páll Jónsson GK 7 kominn á flot
2957. Páll Jónsson GK 7 kominn á flot í Gdansk. Ljósmynd Kjartan Viðarsson 2019. Eins og sagði hér á síðunni í gær var stefnt að því að þetta glæsilega 45 metra langa og 10,5 metra breiða línuskip sem er á myndunum færi á flot í dag. Og það gekk eftir því hinn nýi Páll Jónsson … Halda áfram að lesa Nýi Páll Jónsson GK 7 kominn á flot
Arnar HU 1
2265. Arnar HU 1 ex Neptun. Ljósmynd Þór Jónsson 2019. Frystitogarinn Arnar HU 1 frá Skagaströnd sést hér á toginu en þessi 60 metra togari er í eigu FISK Seafood ehf. á Sauðárkróki. Skagstrendingur hf. á Skagaströnd keypti togarann frá Rússlandi árið 1996 og sagði m.a svo frá í 5. tbl. Ægis það ár: Nýr … Halda áfram að lesa Arnar HU 1
Sirrý ÍS 36 að veiðum
2919. Sirrý ÍS 36 ex Stamsund N-11-VV. Ljósmynd Þór Jónsson 2019. Skuttogarinn Sirrý ÍS 36 frá Bolungarvík er hér að veiðum sunnan við land en myndina tók Þór Jónsson skipverji á Ljósafelli SU 70. Sirrý ÍS 36, sem áður hét Stamsund N-11-VV, var keypt frá Noregi og kom inn í flotann í janúar árið 2016. … Halda áfram að lesa Sirrý ÍS 36 að veiðum









