Ásdís ÞH 136 – Myndasyrpa

2783. Ásdís ÞH 136 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Í þessari myndasyrpu gefur að líta grásleppubátinn Ásdísi ÞH 136 frá Húsavík þar sem hún er á heimstími í veðurblíðunni í dag. Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni er það Barmur ehf. sem gerir hana út en báturinn er … Halda áfram að lesa Ásdís ÞH 136 – Myndasyrpa →

Ósk ÞH 54 á Skjálfanda

2447. Ósk ÞH 54 ex Guðný NS 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grásleppubáturinn Ósk ÞH 54 er hér á siglingu til hafnar á Húsavík í dag en grásleppuveiðin hefur verið mjög góð hjá bátnum. Ósk ÞH 54 er tæp 12 bt. að stærð af AWI-gerð og smíðuð í Færeyjum 1999.  Eigandi frá árinu 2016 er Sigurður Kristjánsson … Halda áfram að lesa Ósk ÞH 54 á Skjálfanda →

Blue Sapphire kom til Straumsvíkur í dag

IMO 9877339. Blue Sapphire. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Súrálsskipið Blue Sappphire kom til Straumsvíkur í dag en þetta 180 metra langa skip naut aðstoðar tveggja hafnsögubáta við að komast að bryggju. Skipið sem er 30 metra breitt og mælist 23,703 GT að stærð. Það var smíðað árið 2020 og siglir undir fána Panama. IMO 9877339. … Halda áfram að lesa Blue Sapphire kom til Straumsvíkur í dag →

Valaberg GK 399

1031.Valaberg GK 399 ex Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Valaberg GK 399 hét áður Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 en upphaflega Magnús NK 72, smíðaður fyrir Ölver hf. á Neskaupsstað. Smíðin fór fram árið 1967 í Lindstöl Skips & Baatbyggeri A/S í Risör í Noregi og var með smíðanúmer 263. Magnús, sem … Halda áfram að lesa Valaberg GK 399 →

Hamar SH 224 að draga línuna

253. Hamar SH 224 ex Jökull ÞH 299. Ljósmyns Sigurður Davíðsson 2021. Sigurður Davíðsson skipverji á Steinunni SF 10 tók þessa mynd í vikunni og sýnir hún Hamar SH 224 frá Rifi draga línuna Um Hamar má lesa nánar hér en upphaflega hét hann Jörundur II RE 299, smíðaður í Englandi 1964. Með því að smella … Halda áfram að lesa Hamar SH 224 að draga línuna →

Bessi í flotkví í Hafnarfirði

2013. Bessi ÍS 410. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bessi ÍS 410 var smíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S, í Flekkefjord í Noregi og hafði smíðanúmer 144 hjá stöðnni. Hann var smíðaður fyrir Álftfirðing h.f í Súðavík og leysti af hólmi eldra skip með sama nafni. Bessi var 807 brl. að stærð. Bessi ÍS 410 var … Halda áfram að lesa Bessi í flotkví í Hafnarfirði →

Tómas Þorvaldsson að veiðum

2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir af frystitogaranum Tómasi Þorvaldssyni GK 10 þar sem hann var að veiðum sunnan við Eyjar um páskana. Togarinn var smíðaður í Noregi árið 1992 fyrir Skagstrending hf. á Skagaströnd og hét þá Arnar HU 1. Arnar var seldur … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson að veiðum →

Kristín ÞH 157

972. Krstín ÞH 157 ex Kristín GK 157. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Kristín ÞH 157 lætur hér úr höfn eftir löndun á Húsavík þann 23. september árið 2011. Kristín ÞH 157 var smíðuð í Boizenburg í Austur-Þýskalandi 1965, hét upphaflega Þorsteinn RE 303.  Síðar bar báturinn nöfnin Þorsteinn RE, Hafrún ÍS, Hafrún BA, Pétur Ingi KE, Stjörnutindur … Halda áfram að lesa Kristín ÞH 157 →